Sport

Ásgeir hafnaði í 15. sæti á EM

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Mynd/Valli
Skotfimikappinn Ásgeir Sigurgeirsson úr Skotfélagi Reykjavíkur var aðeins þremur stigum frá því að komast í úrslit á EM í frjálsri skammbyssu.

Ásgeir keppti í greininni á Ólympíuleikunum í London á síðasta ári með góðum árangri.

Alls tóku 49 keppendur þátt á EM sem haldið var í Króatíu nú um helgina en Ásgeir fékk 553 stig í undankeppninni.

Þetta var síðasta mót Ásgeirs í mótaröð sumarsins og tekur nú við undirbúningur fyrir næsta vetur.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×