Bíó og sjónvarp

Heimtaði milljón dollara á dag

Haukur Viðar Alfreðsson skrifar
Stallone og félagar gengu ekki að kröfum Willis.
Stallone og félagar gengu ekki að kröfum Willis. mynd/getty
Leikarinn Bruce Willis fór fram á fjórar milljónir Bandaríkjadala fyrir að leika í þriðju Expendables-myndinni. Í kjölfarið var honum skipt út fyrir Harrison Ford.

Þetta fullyrðir heimildarmaður The Hollywood Reporter, en Sylvester Stallone setti inn Twitter-færslu í fyrradag þar sem hann sakar Willis um að vera gráðugan og latan.

Fyrirætlaðir tökudagar Willis, sem lék í fyrstu tveimur myndum seríunnar, voru samtals fjórir og krafðist hann þess að fá milljón á dag. Þá er Stallone ásamt framleiðendum myndarinnar sagður hafa sagt þvert nei.

Það er spurning hversu djúpt ósætti þessara gömlu félaga ristir, en árið 1991 stofnuðu þeir veitingastaðinn Planet Hollywood ásamt Arnold Schwarzenegger.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.