Lífið

Kate Hudson í súper formi

Kate Hudson æfir vissulega það sem hún prédikar en hin 34 ára leikkona gekk meðfram Kaliforníu strönd á dögunum í æfingafötum og var ófeimin við að sýna vel æfða kviðvöðvana.  

Glee gestastjarnan sást fara í gegnum fullkomnar Pilates æfingar á ströndinni í Santa Barbara en hún var á ströndinni til þess að taka upp Pilates æfingamyndband. 



Enginn vafi leikur á að myndbandið verði áhugavert en Kate hefur tvímælalaust unnið hörðum höndum til að komast í form. Í 15 ár  hefur hún unnið  með sama einkaþjálfaranum og Pilates kennara, Nicole Stuart.



Nicole sagði í viðtali við Shape tímaritið að Kate verji miklum tíma í  að æfa Pilates en blandi því með öðrum tegundum af æfinga. 





Kate Hudson á tvo syni en þann yngri á hún með unnusta sínum, Matt Bellamy sem einnig var á svæðinu til að styðja hana. Þrátt fyrir að hafa eignast son fyrir tveimur árum er Kate í betra formi en nokkru sinni fyrr. 






Fleiri fréttir

Sjá meira


×