Bíó og sjónvarp

Auðvitað mætti Fjölnir - þetta er hestamynd

Ellý Ármanns skrifar
Meðfylgjandi myndir voru teknar á forsýningu kvikmyndarinnar Hross í oss í gærkvöldi. Eins og sjá má á myndunum voru gestir kátir.

Kvikmyndin er eftir Benedikt Erlingsson sem hefur unnið til flestra leikhúsverðlauna sem hægt er; sem leikari, leikstjóri og leikskáld. Hann hefur áður sent frá sér tvær stuttmyndir en Hross í oss er hans fyrsta mynd í fullri lengd. 

Myndin fléttar saman sögur af lífsbaráttunni, viðureign mannsins við náttúruna og tilraunum hans til að beisla dýrslega krafta sköpunarverksins til sinnar eigin upphefðar, eða glötunar eins og segir í tilkynningu.

Kvikmyndin er grimm sveitarómantík um manninn í hrossinu og hrossið í manninum. Örlagasögur af fólki í sveit eru sagðar frá sjónarhorni hestsins þar sem ást, kynlíf, hross og dauði fléttast saman með skelfilegum afleiðingum. 

Aðalleikarar myndarinnar eru auk þeirra Jarps, Skjóna og Yrju, þau Ingvar E. Sigurðsson, Steinn Ármann Magnússon, Charlotte Böving og Kristbjörn Kjeld ásamt fleirum. Framleiðandi er Friðrik Þór Friðriksson.

Smelltu á efstu mynd í frétt til að skoða albúmið.

Hér má sjá myndband sem tekið var í gær: 



Fjölnir Þorgeirsson og Bryndís Ásmundsdóttir.
Hestur mætti á sýninguna.
Steinn Ármann Magnússon og Jón Gnarr.
Benedikt Erlingsson hélt ræðu fyrir fullum sal af fólki.





Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.