Lífið

Ólafur Darri rísandi stjarna í Bandaríkjunum

Jakob Bjarnar skrifar
Ólafur Darri fer með veigamikið hlutverk í sjónvarpsþættinum Line of Sight hjá AMC.
Ólafur Darri fer með veigamikið hlutverk í sjónvarpsþættinum Line of Sight hjá AMC.
Leikarinn Ólafur Darri Ólafsson verður í forgrunni sjónvarpsþáttarins Line of Sight hjá kapalstöðinni AMC sem á meðal annars heiðurinn á þáttunum Breaking Bad og Mad Men.

Kvikmyndavefurinn Svarthöfði greinir frá þessu og segir meðal annars að stórlaxar á borð við Jonathan Demme, leikstjóri Silence of the Lambs, sé einn þeirra sem eru með puttana í þessum þáttum sem fjalla um Lewis Bernt, sem David Morrissey leikur, sem lifir af dularfullt flugslys. Hann leggur í kjölfarið upp í rannsóknarleiðangur þar sem hann reynir að komast að tildrögum slyssins og þar kemur að Ólafi Darra sem leikur Edgar, ósveigjanlegum og voldugum manni sem virðist vita ýmislegt um slysið.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×