Lífið

Stóllinn Hugleikur lítur dagsins ljós

Sara McMahon skrifar
Andrés Þór Björnsson innanhúsarkitekt.
Andrés Þór Björnsson innanhúsarkitekt.
Andrés Þór Björnsson innanhússarkitekt frumsýnir stólinn Hugleik á Hönnunarmars helgina 14. til 17. mars. Teikningar eftir listamanninn Hugleik Dagsson prýða stólinn. Andrés Þór kveðst hafa fengið hugmyndina að stólnum fyrir rúmum áratug, þegar hann stundaði nám í innanhússarkitektúr á Ítalíu. "Ég var á einhverri hönnunarsýningu og sá þar stól sem var skreyttur teiknimyndum og varð mjög hrifinn af honum. Hugmyndin að stólnum hefur blundað í mér síðan þá,“ útskýrir hann. Andrés er mikill aðdáandi Hugleiks og ákvað því að leita til hans í von um samstarf. "Hann tók strax vel í hugmyndina og við erum báðir sannfærðir um að við séum með mjög söluvæna vöru í höndunum.“ Andrés og Hugleikur hittust nokkrum sinnum og ræddu hönnun og útlit stólsins. Andrés fékk svo það vandasama verk að velja teikningar á stólinn. "Það var erfitt að velja úr öllum teikningunum því þær voru allar svo fyndnar. Ég sleppti þessum grófustu því þær hefðu til dæmis ekki hentað inn á heimili þar sem eru börn.“ Andrés útilokar ekki áframhaldandi samstarf við Hugleik og segir möguleika á stærri vörulínu í sama dúr, til dæmis púða og kolla. Aðspurður kveðst Hugleikur hafa slegið til vegna þess að stólar eru húsgagn sem eru honum að skapi. "Ég sagði já af því þetta er stóll, sem er jákvætt fyrirbæri í mínum huga, og ég hlakka mikið til að sjá útkomuna.“ Teikningar Hugleiks prýða nú stuttermaboli, húsgagn og líkama fólks, því einhverjir hafa látið húðflúra teikningar hans á sig. "Það verður forvitnilegt að sjá hvert hægt er að setja þær næst. Ég mundi allaveganna ekki vilja sjá þær allstaðar, ég vil ekki að þær séu eins og Coka Cola.“
Stóllinn Hugleikur verður frumsýndur á HönnunarMars.





Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.