Sannleikurinn: Jón Baldvin fékk Emmy verðlaunin fyrir bestan leik karlmanns í fórnarlambshlutverki Andri Þór Sturluson skrifar 23. september 2013 18:00 Bestur í fórnarlambshlutverki
Glæpaþáttaröðin Gillz málið var valin besta dramaþáttaröðin á fréttamiðlunum á Emmy-verðlaunahátíðinni í nótt. Þetta er í fyrsta sinn sem þáttur framleiddur af DV fær Emmy verðlaun sem besta dramaþáttaröðin. Nútímafjölskylda, Modern Framsóknarflokkurinn, þóttu hins vegar bestu gamanþættirnir. Þá var Jón Baldvin talinn standa sig best karla í alvarlegu fórnarlambshlutverki, í Bréf til barns, og Vigdís Hauksdóttir best kvenna í alvarlegu aðalhlutverki, í Ættjörð eða Homeland. Reynir Traustason, ritstjóri DV, fékk síðan Emmy-verðlaun fyrir bestu leikstjórn, en hann leikstýrir öllum helstu hneykslunarmálum fréttamiðlanna. Sannleikurinn rekur öfluga og óvæga fréttastofu þar sem engum er hlíft og ekkert mál er of stórt eða of lítið. Sannleikurinn er háður öllum stjórnmálaflokkum og hagsmunaaðilum. Fréttastofa Sannleikans hefur Facebook-síðu en hún er aðeins fyrir sígraða satyríkona.
Harmageddon Mest lesið Með rokkið í blóðinu Harmageddon Sannleikurinn: Pizzukvöld yfir The Biggest Loser Harmageddon „Besta veganesti sem hægt er að gefa barni að biðja með því“ Harmageddon Engin Agent Fresco plata á þessu ári Harmageddon Ný plata frá Deftones í ár Harmageddon Sannleikurinn: Guð þakkaði Sigmundi og Bjarna sérstaklega í árlegu jólaávarpi sínu Harmageddon Segja ríkið gefa frá sér 23 milljarða til vogunarsjóða Harmageddon