Stöð 2 Sport mun blása til sóknar í umfjöllun sinni um íslenskan körfuknattleik en fyrr í dag var undirritaður samstarfssamningur milli Körfuknattleikssambands Ísland og Stöð 2 Sport.
Stöðin mun sýna tíu leiki beint í Dominos-deild karla fram að úrslitakeppninni að auki verða fleiri leiki sýndir beint í úrslitakeppninni sjálfri.
Í Dominos-deild kvenna verða leikir í úrslitakeppninni sýndir beint á Stöð 2 Sport.
Ari Edwald, forstjóri 365 miðla, og Hannes Sigurbjörn Jónsson, formaður KKÍ undirrituðu, nýjan tveggja ára samning við milli stöðvarinnar og KKÍ fyrr í dag.
Fyrsta beina útsending Stöð 2 Sport verður á fimmtudagskvöldið þegar Grindavík tekur á móti KR í Röstinni.
Hér að neðan má sjá þá leiki í Dominos deild karla sem verða í beinni útsendingu Stöðvar 2 Sport fram að jólum.
10. október: Grindavík-KR
28. október: Njarðvík-Keflavík
4. nóvember: KR-Stjarnan
11. nóvember: Snæfell-Grindavík
25. nóvember: Þór Þorlákshöfn-Skallagrímur
9. desember: Stjarnan-KFÍ
Körfubolti