Bílar

Hyundai ix35 frumsýndur um helgina

Finnur Thorlacius skrifar
Hyundai ix35
Hyundai ix35
Hyundai frumsýnir um helgina nýjan jeppling frá Hyundai sem kallast ix35. Jepplingurinn er arftaki Hyundai Tucson sem hefur verið afar vinsæll hér á landi og var meðal annars valinn jepplingur ársins af íslenskum bílablaðamönnum. Munurinn á þessum bílum er ekki síst sá að Hyundai ix35 er mun sparneytnari en forveri sinn.

Beinskiptur með dísilvél eyðir hann aðeins um 5,5 lítrum á hundraðið í blönduðum akstri en 6,9 innanbæjar. Sem gerir hann að einum af sparneytnari bílunum á markaðnum af þessari stærð. Þrátt fyrir að nýja dísilvélin sé sparneytnari en vélarnar í fyrri útgáfum þá þykir hún hafa gott tog og gefa bílnum skemmtilega akstureiginleika. Það má segja að í honum sameinist gnægð af krafti, sparneytni, áreiðanleiki og öryggi.

Hyundai hefur vaxið fiskur um hrygg undanfarin ár og fyrirtækið hefur fengið orðspor fyrir að framleiða áreiðanlega bíla sem þurfa lítið viðhald. Einnig hafa bílar fyrirtækisins tvívegis á síðustu fimm árum hlotið útnefningu sem bíll ársins í Bandaríkjunum og Hyundai telst nú vera fjórði stærsti bílaframleiðandi heims.

„Fyrstu ix35 jepplingarnir eru nýkomnir til landsins og það er okkar tilfinning að þetta sé bíll sem muni ganga vel. Hann er á fínu verði og það eru margir Íslendingar sem eiga eða hafa átt jepplinga frá Hyundai. Þeir hafa líka reynst mjög vel við íslenskar aðstæður. Að geta fengið hann með svona eyðslugrannri vél gerir dæmið enn meira aðlaðandi fyrir þá sem eru komnir á tíma með endurnýjun, “ segir Ragnar Steinn Sigþórsson sölustjóri Hyundai á Íslandi.

Ragnar hefur selt Hyundai í meira en áratug og á marga fastakúnna enda með viðkunnalegri bílasölum. Ragnar og samstarfsfélagar hans ætla að bjóða gestum frumsýningarinnar upp á léttar veitingar í höfuðstöðvum Hyundai umboðsins við Kauptún í Garðabæ (á móti IKEA) í dag laugardag en opið verður frá kl.12-16 og einnig frá kl.13 til 16 á sunnudag.

Hyundai ix35 er vel búinn nýjustu tækni s.s. brekkuhjálp, brekkubremsu, ESP-stöðugleikastýringu og rafstýrðu fjórhjóladrifi. Hyundai ix35 er fáanlegur með 163 hestafla bensínvél og sjálfskiptingu, 136 hestafla dísilvél og beinskiptingu, 136 hestafla dísilvél og sjálfskiptingu.






×