Bíó og sjónvarp

Benedikt Erlingsson valinn besti leikstjórinn

Ólöf Skaftadóttir skrifar
Friðrik Þór og Benedikt Erlingsson.
Friðrik Þór og Benedikt Erlingsson. Vísir/Vilhelm
Benedikt Erlingsson, leikstjóri kvikmyndarinnar Hross í Oss, var valinn besti leikstjórinn á alþjóðlegu kvikmyndahátíðinni í Tokýó í dag.

Friðrik Þór Friðiksson, leikstjóri og framleiðandi er staddur ásamt Benedikt í Tókýó, en hann er einn framleiðanda kvikmyndarinnar.

„Það hefur gengið alveg rosalega vel. Það hefur verið uppselt á allar sýningar og Benni heillar áhorfendur með svörum sínum eftir sýningar,“ segir Friðrik.

„Þessi keppni er mjög sterk. Til dæmis er mynd Lukas Moodysson, Vi är bäst, sem sýnd er í Bíó Paradís, í keppninni og fleiri sterkir kvikmyndaleikstjórar,“ bætir Friðrik við en Vi är bäst var valin besta myndin á hátíðinni.

Ljóst að verðlaunin eru þýðingarmikil fyrir Benedikt. 
Alþjóðlega kvikmyndahátíðin í Tokýó er nú haldin í tuttugusta og sjötta sinn en hún er ein stærsta hátíð sinnar tegundar í Asíu.

Meðal þeirra sem kynntu nýjar myndir sínar á hátíðinni í ár eru leikararnir Robert DeNiro og Tom Hanks og leikstjórarnir Sofia Coppola og Paul Greengrass.

Fyrir tæpum mánuði var Benedikt valinn besti nýi leikstjórinn á kvikmyndahátíðinni í San Sebastian. Hér á Vísir Sjónvarp má sjá skemmtilega nærmynd sem Ísland í dag gerði af honum af því tilefni. 

Hér fyrir neðan má síðan sjá sýnishorn úr Hross í oss en þess má geta að myndin er framlag Íslands til Óskarsverðlaunanna sem verða afhent á næsta ári.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.