Tónleikar Emilíönu Torrini á Iceland Airwaves á miðvikudagskvöld mörkuðu tímamót. Tónleikarnir voru hennar fyrstu á hátíðinni frá árinu 1999 og einnig í fyrsta sinn sem Emilíana kemur fram í Hörpu. Löngu var orðið tímabært að ein af okkar bestu söngkonum endurnýjaði kynni sín við Iceland Airwaves.
Lög af nýrri plötu Emilíönu, Tookah, voru fyrirferðamikil á efnisskránni og er ljóst að þar er um mjög vandaða plötu að ræða. Emilíana ákvað sjálf í upphafi tónleikanna að ávarpa gesti á móðurmálinu sem féll vel í kramið hjá Íslendingum í salnum. Hún hóf leik á laginu Tookah en það er grípandi og skemmtilegt lag sem greip áhorfendur strax.
Tónleikarnir voru einu orði sagt frábærir. Frammistaða Emilíönu var mögnuð og söngur hennar oft á tíðum dáleiðandi. Tónleikarnir voru fumlausir og ljóst að Emilíana er í fantaformi um þessar mundir.
Niðurstaða: Heillandi og einlæg frammistaða sem hitti beint í mark.
