Undirheimarnir of brútal fyrir skáldsögur Ómar Úlfur skrifar 5. nóvember 2013 14:11 Stfán Máni hefur sent frá sér skáldsöguna Grimmd „
Undirheimarnir og glæpirnir eru oft það brútal að það er varla hægt að nota þá í skáldsögur eða í bíómyndir“ segir rithöfundurinn Stefán Máni í viðtali í miðdegisþættinum Ómar á X-977. Þrettánda skáldsaga Stefáns Mána, Grimmd er nýlega komin út og hefur nú þegar hlotið frábærar viðtökur. Stefán vinnur mikla rannsóknarvinnu við vinnslu bóka sinna. Hann fylgist vel með blöðum og dómsmálum og er í góðu sambandi við lögregluna. Stefán Máni kannar einnig staðarhætti og fór meðal annars með tjald í bílnum bæði til Sauðárkróks og til Akureyrar þegar að hann vann að Grimmd. Segir hann þessa vinnu vera mikilvæga til að auka trúverðugleika skáldsögunnar. Það er nokkrar bækur í kollinum á Stefáni Mána sem að hann á eftir að vinna að. Hann segist hugsa stórt og er meðal annars með hugmynd af tveimur vísindaskáldsögum sem að honum langar til að skrifa. Reykjavík Studios , fyrirtæki Baltasars Kormáks, hefur tryggt sér kvikmyndaréttinn á bókunum Úlfshjarta og Húsinu. Í raun keypti fyrirtækið einnig réttinn af Herði Grímsyni, söguhetju Stefáns sem hefur komið fyrir í fjórum bóka hans, nú síðast í Grimmd. Stefán segist byggja karakterinn að einhverju leyti á Peter Steele heitnum bassaleikara og söngvara hljómsveitarinnar Type O Negative en sá átti ættir sínar einmitt að rekja til Íslands. „Tónlist og bíómyndir eru stór hluti af mínu lífi og innblástur“ segir rithöfundurinn. Hann segist lesa mikið af rokktextum og noti slíka oft í bókum sínum. Þó að tónlist heyrist ekki í bókum þá sé hún mikilvæg til að undirstrika persónuleika eða stemningu. Rokktextar eru alveg jafn mikill hluti af lífinu og Dostoyevsky segir Stefán Máni í viðtalinu. Hjómsveitin The Clash kemur töluvert fyrir í nýjustu bók Stefáns Mána sem segist alltaf hafa verið The Clash maður. Hann segir sveitina eins og plánetu í sólkerfi sveita sem komi ei meir eins og t,d The Beatles og Black Sabbath. Viðtalið í heild sinni má heyra hér fyrir ofan.
Harmageddon Mest lesið Plötusala í Bandaríkjunum aldrei verið minni Harmageddon Óupplýstum æsifréttamanni pakkað saman af pollrólegum dýrafræðingi Harmageddon Queens of the Stone Age enn á toppi Pepsi Max listans Harmageddon #FreeTheNipple er byltingarkennt af mörgum ástæðum Harmageddon Skiptir máli að kalla sig femínista? Harmageddon Nýtt myndband með Leoncie og Shades of Reykjavík Harmageddon 5 bestu Eurovision-lögin sem unnu ekki undankeppnina á Íslandi Harmageddon Prúðmannleg handtaka Harmageddon Segir láglaunafólk geta bætt kjör sín með því að flytja út úr borginni Harmageddon Ný plata frá Lanegan Harmageddon