Harmageddon

ATP hátíðin með stærra sniði á Íslandi í sumar

Orri Freyr Rúnarsson skrifar
Plakat hátíðarinnar
Tónlistarhátíðin All Tomorrow's Parties verður haldin í annað sinn á Ásbrú næstkomandi sumar og verður hátíðin á næsta ári stærri í sniðum en hún var fyrr á þessu ári og mun hún því standa yfir í þrjá daga, 10.-12.júlí. 

Hátíðin heppnaðist gríðarlega vel í fyrsta sinn sem hún var haldin hér á landi en þar komu fram hljómsveitirnar Nick Cave and the Bad Seeds, Thee Oh Sees, The Fall og fleiri. 

Hátíðin fer sem áður fram á Ásbrú, gamla varnarliðssvæðinu, en þar er öll aðstaða til tónleikahalds til fyrirmyndar. 

Upplýsingar um hljómsveitir sem kom fram á ATP Iceland 2014 eru væntanlegar á næstunni en miðasala er hafin á heimasíðu ATP og á miði.is



×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.