Lífið

„Ekki í vafa um að þetta væri hjartað“

Telma Tómasson skrifar
Elfa Stefánsdóttir, 51 árs Hafnfirðingur, var óviðbúin áfallinu þegar hún vaknaði um miðja nótt í mars 2010 með mikla stingi í brjóstholinu. Hún var ekki í vafa um að hjartað væri að bila.

Elfa telur sig heppna að lifa og hvetur bæði konur og karla til að hugsa um styrkingu hjartans og æðakerfisins, huga að lífsstíl sínum, borða hollt og sleppa reykingum.

Ótímabær dauðsföll vegna lífsstíls eru alltof algeng á Íslandi, því þjóðin borðar of mikið af óhollustu, reykir of mikið, drekkur of mikið áfengi og hreyfir sig ekki nóg. Með bættum lífsstíl er hægt að lengja lífið.

Úr þættinum Doktor, sem er á dagskrá Stöðvar 2 á fimmtudagskvöldum klukkan 20.15. 






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.