Bílar

Sportlegur í útliti og akstri

Finnur Thorlacius skrifar
Laglegur bíll Volkswagen CC
Laglegur bíll Volkswagen CC
Reynsluakstur – Volkswagen CC

Volkswagen CC hefur ekki verið í boði ýkja lengi og kom fyrst á markað árið 2008 og hét þá Volkswagen Passat CC. Þetta tvöfalda C stendur fyrir Comfort Coupé en bílar með því lagi eru iðulega mjög sportlegir. Það á við þennan bíl og er hann ansi vænn fyrir augað. CC hefur nú verið aðgreindur frá Passat bílnum, enda örlítið lengri og breiðari bíll. Engu að síður er CC ekki mikið dýrari og reyndar vill svo til að CC með 177 hestafla 2,0 lítra dísilvél er ódýrari en Passat með sömu vél, en sá er hinsvegar fjórhjóladrifinn. 



Volkswagen CC stendur út meðal coupé bíl í því tilliti að hann er fjögurra dyra en flestir aðrir tveggja dyra. Vilja reyndar margir meina að ekki ætti að kalla fjögurra dyra bíl coupé-bíl nema hann sé tveggja dyra, en hvað um það. Volkswagen CC hefur svo til ekkert breyst í útliti frá upphafi og þrátt fyrir að línur hans séu til prýði er ef til vill kominn tími á endurhönnun í takt við nýja tíma.



Óhætt að mæla með stærri dísilvélinni

Eins og á við svo marga bíla í dag er áhersla lögð á dísilvélar við sölu á CC hjá Heklu og þannig var reynsluakstursbíllinn. Hann var með 2,0 lítra og 140 hestafla dísilvél, en einnig má fá 177 hestafla dísilvél með sama sprengirými. Sú vél er reyndar eyðslugrennri og mengar minna, sem furðu sætir. Það besta er að ekki munar nema 150.000 á þessum útfærslum, en 140 hestafla úgáfan kostar 5.940.000 kr. en sú 177 hestafla 6.090.000 kr. Það færi því ekki á milli mála í tilfelli undirritaðs hvor þeirra yrði fyrir valinu.

Volkswagen CC má einnig fá með 1,8 lítra og 160 hestafla TSI bensínvél og er hann þeirra dýrastur á 6.140.000 kr. Því er ekki nema vona að öll áherslan sé lögð á dísilbílana, en þeir falla í mun lægri tollflokk vegna lítillar mengunar þeirra og skýrir það út lægra verð þeirra.  Örðugt reyndist hinsvegar að ná uppgefinni eyðslu bílsins við reynsluaksturs og á það við um alltof marga bíla og var meðaleyðsla hans ávallt á milli 9 og 10 lítrar, en hafa skal í huga að kalt var í veðri.



Góðar dísilvélar og sportlegur akstur

Akstur CC bílsins með þessari minni dísilvél er ótrúlega ljúfur og það merkilega er að þessi vél er nægilega öflug fyrir bílinn, þó svo viljinn hafi enn frekar staðið til öflugri dísilvélarinnar. Aksturseiginleikar bílsins eru eins og vænta mátti með Volkswagen bíl hreint ágætir og henda má honum hratt í beygjur án þess að beri á undirstýringu. Þó varð reynsluaksturinn nokkuð takmarkaður við afar slæma færð í höfuðborginni þar sem mikil hálka var þessa helgi og því erfitt að taka það besta úr bílnum.

Það kom á óvart að þrátt fyrir að bíllinn liggi nokkuð neðarlega á vegi rakst hann aldrei undir á hraðahindrunum bæjarins og má það þakka góðri fjöðrun bílsins, sem í leiðinni fer afar vel með farþega. Eiginleikar bílsins rýma ágætlega við útlit bílsins, semsagt sportlegir og hefði annað engöngu verið úr takti og valdið vonbrigðum. Sjö gíra DSG skiptingin er eins og ávallt frábær og skilar afli vélarinnar fimlega og átakalaust.



Aftursætisrými þjáist af coupé-lagi bílsins

Einn af stórum kostum þessa bíls er flott innrétting hans. Hann klórar hressilega í lúxusflokk bíla með sína vönduðu og vel smíðuðu innréttingu og ekki versnar það ef valin er mjög smekklega Ambiente útfærsla hennar. Þá er hann eins og sannur lúxusbíll og gefur ekkert eftir flottar innréttingar úr Audi, BMW og Benz bílum. Þarna gerir Volkswagen ávallt vel. Flott efnisval og greinilega góð smíði hennar er reyndar vörumerki Volkswagen.

Framsætin eru góð og þau eru rafstýrð að öllu leiti nema því að þau renna fram og aftur með handafli. Aftursætin eru líka þægileg en þjást af coupé-lagi bílsins og því er ekkert sérlega rúmt um farþega þar, serlega hvað varðar höfuðrými. Skottrými bílsins er þokkalega stórt en vænta má stærra rýmis í svo stórum bíl sem CC er.  Það kom dálítið á óvart að ekki var hiti í sætum, sem hefði komið sér vel á köldum dögum reynsluakstursins og miðstöðin er ekki hitastillt heldur með gamla laginu. Að öðru leiti er bíllinn vel búinn staðalbúnaði.



Freistandi að velja fallegustu útfærsluna

Flestir eigendur Volkswagen CC kaupa hann vegna sportlegs útlits hans og flottra lína sem leika um bílinn, en þeir verða heldur ekki sviknir af akstri hans né fallegrar innréttingar bílsins. Mjög freistandi er að bæta við R-line útlitspakkanum en með honum er kominn einstaklega sportlegur bíll sem stendur úr fjöldanum. Erfitt er líka að standast það að taka hann með dýrustu og fallegustu innréttingunni sem sannarlega er þess virði, en þá er líka kominn bíll sem stendur jafnfætis bílum lúxusmerkjanna, en samt talsvert ódýrari. Óhætt er að mæla með öflugri dísilvélinni, ekki síst í ljósi þess að hún er sáralítið dýrari en sú aflminni, sem og bensínútfærsla hans.

Kostir: Akstureiginleikar, vönduð innrétting

Ókostir: Aftursætisrými, skottrými,

2,0 l. dísilvél, 140 hestöfl

Framhjóladrif

Eyðsla: 5,3 l./100 km í bl. akstri

Mengun: 140 g/km CO2

Hröðun: 9,8 sek.

Hámarkshraði: 214 km/klst

Verð frá: 5.940.000 kr.

Umboð: Hekla

Smekkleg innrétting í CC





×