Lífið

Brotnaði niður þegar hann hitti móður Paul Walker

Lilja Katrín Gunnarsdóttir skrifar
Paul og Vin á góðri stundu.
Paul og Vin á góðri stundu.
Þegar hasarhetjan Vin Diesel fékk fregnirnar að vinur hans og meðleikari í Fast and Furious, Paul Walker, hefði látist í bílslysi flaug hann til Kaliforníu til að styðja móður hans, Cheryl Walker.

"Ég hélt að fjölskyldan þyrfti á mínum styrk að halda en ég gerði mér grein fyrir því að ég þurfti þeirra styrk þegar ég brotnaði niður fyrir framan þau. Móðir hans faðmaði mig og sagði að hún samhryggðist mér. Samhryggðist mér? Þú ert móðir sem missti son sagði ég. Já, en þú misstir hinn helminginn af þér sagði hún þá," skrifar Vin á Facebook-síðu sína.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.