Lífið

Til minningar um Paul Walker

Lilja Katrín Gunnarsdóttir skrifar
Vikan hefur verið erfið fyrir vini og ættingja leikarans Paul Walker en hann lést 30. nóvember í bílslysi.

Paul var byrjaður að leika í kvikmyndinni Fast and Furious 7 en tökum hefur verið frestað vegna andláts hans. Aðstandendur myndarinnar syrgja nú fallinn félaga og settu sérstakt myndband á Youtube þar sem Pauls er minnst.

Í myndbandinu eru bútar úr myndum sem Paul hefur leikið í og undir hljómar lagið I'm Coming Home með J. Cole og Skylar Grey.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.