Óvíst hvort að Fast and the Furious haldi áfram 2. desember 2013 11:30 Óvíst er hvort að Vin Diesel og Tyrese Gibson muni halda áfram með Fast and the Furious myndirnar í kjölfar fráfalls Paul Walker, lengst til vinstri.
Óvissa ríkir um framtíð kvikmyndaseríunnar Fast and the Furious í kjölfar andláts Paul Walker um helgina. Stór hluti sjöundi myndarinnar í seríunni hefur verið festur á filmu en nú er ljóst að klára þarf tökur án Walker. Framleiðundur myndarinnar áttu símafund með James Wan leikstjóra myndarinnar um hugsanlegt framhald. Málsmetandi menn innan Hollywood telja að þetta gæti orðið síðasta myndin í seríunni, hópurinn sem að henni standi sé samheldinn og í raun eins og fjölskylda og muni eiga í erfiðleikum með að komast yfir þennan hrikalega atburð helgarinnar. James Wan lýsti því yfir á Twitter-síðu sinni að hann væri bugaður af sorg og „trúi ekki að þetta hafi gerst.“ Áður hefur gerst að leikarar hafi látið lífið áður en tökum á kvikmynd sem þeir eru að vinna af hafi verið lokið. Heath Ledger lést áður en tökum á mynd Terry Gilliam, The Imaginarium of Dr. Parnuss, var lokið. Jude Law, Colin Farrell og Johnny Depp léku allir í stað Ledger. Leikarinn Oliver Reed lést á sama tíma og tökur á stórmyndinni Gladiator stóðu yfir. Leikstjórinn Ridley Scott fór þá leið að láta tölvugera andlit Reed og setja það inn í mikilvæg atriði.Paul Walker setti þessa mynd á Twitter-síðu sína daginn áður en hann lést.Ljóst er að dauði Walker hefur haft mikil áhrif á marga. Aðdáendur hans hafa keppst við að senda kveðjur á samfélagsmiðla netsins. Fjöldi leikarar hefur tjáð sig opinberlega og lýst yfir sorg sinni. Samleikarar hans í Fast and the Furious myndunum hafa þar verið fremstir í flokki. Paul Walker var fæddur 12. september 1973. Hann átti eina dóttur, Meadow Rain sem er 14 ára gömul. Hún bjó með móður sinni fram til ársins 2011 þegar hún flutti til föður síns í Californiafylki. Walker var með háskólagráðu í sjávarlíffræði og var það hans helsta áhugamál. Hann var í stjórn verndarsamtaka sverðfiska og tók þátt í gerð þáttaraðar fyrir National Geographic um hákarla. Hann hóf leiklistarferil sinn ungur, hann lék í auglýsingu fyrir bleiuframleiðandann Pampers tveggja ára að aldri. Hann hóf að leika í sjónvarpsþáttum árið 1985 og lék í sinni fyrstu kvikmynd árið 1986. Ferill hans tók stakkaskiptum þegar hann lék í fyrstu myndinni í Fast and the Furious seríunni. Hann lék í fjölda stórmynda á borð við Into the Blue, Flags of Our Fathers og Joy Ride. Hann lést þann 30. nóvember síðastliðinn í hræðilegu bílslysi, ásamt vini sínum. Talið er að Walker hafi verið í farþegasætinu þegar Porsche-bifreið þeirra kastaðist útaf veginum og lenti á ljósastaur og trjám áður en kviknaði í henni. Þeir voru á leið á góðgerðasamkomu til hjálpar fórnarlamba náttúruhamfaranna á Filippseyjum í nóvembermánuði.
Mest lesið Maggie Smith er látin Lífið Ætlar í blómabað á Balí með manninum sínum Lífið Íslensk börn skorti meiri aga Lífið Kolbrún ber laxerolíu á andlitið Lífið Eva flutt inn í verðlaunahús Kára Lífið Í hnapphelduna með krókódílamanninum Lífið Heldur ekki vatni yfir konunni sinni Lífið Gaf eiginmanninum nektarmynd á stórafmælinu Lífið Kallaður hinn íslenski Forrest Gump af stóra bróður Lífið Íris Ósk selur tryllt hönnunarhús Lífið Fleiri fréttir Þriðja barnið á leiðinni Eva flutt inn í verðlaunahús Kára Kallaður hinn íslenski Forrest Gump af stóra bróður Heldur ekki vatni yfir konunni sinni Íris Ósk selur tryllt hönnunarhús Maggie Smith er látin Gaf eiginmanninum nektarmynd á stórafmælinu Í hnapphelduna með krókódílamanninum Kolbrún ber laxerolíu á andlitið Íslensk börn skorti meiri aga Ætlar í blómabað á Balí með manninum sínum Minnast Bryndísar Klöru á tónleikum: „Pínulítil hugmynd sem stækkaði og stækkaði“ Húðrútína ekki síður fyrir karlmenn Umdeilt uppáhald arkitekts við Austurvöll Tekinn inn í frægðarhöll rafíþróttanna Lakkrískóngurinn Bülow selur sveitasetrið Skilnaður Step Up hjóna genginn í gegn Fyndnustu dýralífsmyndir ársins Tökumenn LXS yfirheyrðir í 90 mínútur og áttu ekki að fá inngöngu inn í landið Úr Idolinu yfir í útvarpið „Siðlausi siðfræðingurinn“ hreyfir ekki við Stefáni Einari Fagnaðarfundir á fyrstu frumsýningu vetrarins Hvað gerði Diddy? Mansal, ofbeldi og samsæriskenningar um Justin Bieber Steldu stílnum af heimili Laufeyjar Sama hvað fólki finnst Danska poppdívan Medina selur glæsivilluna Prince-dansarinn Cat er látinn Heillandi haustkvöld í Höfuðstöðinni Svona undirbýr Bogi sig fyrir útsendingu Ekkert mál að hlaupa alveg staurblindur Sjá meira