Lífið

Jarðarför Paul Walker fer fram í kyrrþey

Lilja Katrín Gunnarsdóttir skrifar
Fjölskylda leikarans Paul Walker skipuleggur nú jarðarför hans en hún mun fara fram í kyrrþey.

Paul var fertugur þegar hann lést 30. nóvember en hann og vinur hans Roger Rodas klesstu á ljósastaur og tré með þeim afleiðingum að kviknaði í bílnum.

Minningarathöfn um Paul var haldin síðasta sunnudag á slysstað og þúsundir mættu til að heiðra minningu leikarans sem er hvað þekktastur fyrir hlutverk sitt í Fast & Furious-myndunum.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.