Sport

Lyfin sem ekki má nota árið 2014

Kolbeinn Tumi Daðason skrifar
Ben Johnson og Carl Lewis takast í hendur á verðlaunapallinum í Seoul árið 1988. Síðar kom í ljós að Johnson hafið fallið á lyfjaprófi og sömu sögu gilti um Lewis nokkrum árum fyrr.
Ben Johnson og Carl Lewis takast í hendur á verðlaunapallinum í Seoul árið 1988. Síðar kom í ljós að Johnson hafið fallið á lyfjaprófi og sömu sögu gilti um Lewis nokkrum árum fyrr. Nordicphotos/Getty
Lyfjaráð Íþrótta- og Ólympíusambands Íslands hefur gefið bannlista Alþjóðalyfjaeftirlitsins, WADA, fyrir árið 2014 út á íslensku.

WADA gefur árlega út lista yfir þau efni og aðferðir sem bönnuð eru við iðkun íþrótta. Listann má nálgast hér. Auk þess gefur WADA út sérstakan eftirlitslista yfir þau efni sem ekki eru bönnuð en þó fylgst sérstaklega með notkun á. Þann lista má nálgast hér.

Nokkrar breytingar hafa orðið á listanum á milli ára og má sjá yfirlit yfir breytingarnar hér.

Á hverju ári koma upp nokkur atvik þar sem íslenskir íþróttamenn eru staðnir að verki við notkun ólöglegra lyfja við iðkun. Dæmt var í sjö slíkum málum árið 2013 en tólf á árinu á undan. Alla dóma má nálgast á heimasíðu ÍSÍ, sjá hér.

Nánari upplýsingar má finna á heimasíðu ÍSÍ.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×