Lífið

Gerir grín að Kanye West

Liam gallagher
Liam gallagher
Liam Gallagher úr hljómsveitinni Beady Eye, fyrrum söngvari Oasis, segir rapparann Kanye West trúð og hálfvita í nýlegu viðtali við tímaritið GQ.

„Hafið þið séð þegar hann rak hausinn í skiltið. Hann er að labba úr ræktinni með kærustunni sinni og þarna eru náungar að taka myndir. Þú verður að halda höfðinu uppi og ganga áfram,“ sagði Gallagher, sem er vanur að hafa sterkar skoðanir á hlutunum.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×