Lífið

Bubbi brattur baksviðs

Ellý Ármanns skrifar
Meðfylgjandi myndir voru teknar í Austurbæ í kvöld þar sem upptökur á hæfileikakeppninni Ísland got Talent sem hefur göngu sína á Stöð 2 í janúar fóru fram fyrir troðfullu húsi. Eins og sjá má fór vel um dómarana Jón Jónsson, Þórunni Antoníu Magnúsdóttur, Bubba Morthens og fyrrverandi menntamálaráðherra Þorgerði Katrínu Gunnarsdóttur baksviðs. Þá voru keppendur einnig myndaðir baksviðs sem og áhorfendur í sal.

Smelltu á efstu mynd í frétt til að fletta albúminu.

Hæfileikakeppnin Ísland Got Talent hefur göngu sína á Stöð 2 í janúar.

Ísland í dag leit við í Austurbæ í dag - sjá myndskeiðið hér.

Fáðu þér áskrift að Stöð 2 hér.

Vel fór á með Bubba Morthens og Þorgerði Katrínu Gunnarsdóttur rétt áður en þau settust í dómarasætin. Bubbi lék á alls oddi.
Jón Jónsson var léttur með gítarinn auðvitað.
Þórunn Antonía Magnúsdóttir var glæsileg að vanda.
Hæfileikaríkir keppendur gáfu sér tíma fyrir myndatöku.
Mikil eftirvænting var hjá þessum dönsurum sem gátu ekki beðið eftir að sýna dómurunum atriðið þeirra.
Hafdís Jónsdottir og Björn Leifsson eigendur World Class voru spennt enda fjölskyldumeðlimur að keppa.
Friðrik Dór og Benedikt Valsson voru á meðal áhorfenda.





Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.