Lífið

Versti afmælisdagur allra tíma

Söngvarinn Justin Bieber varð nítján ára á föstudaginn og ætlaði sko aldeilis að lyfta sér upp í London. Því miður breyttist fögnuðurinn í algjöra martröð.

"Versti afmælisdagur allra tíma," skrifaði Justin á Twitter-síðu sína eftir kvöldið hrikalega.

Súr á svipinn.
Justin fór á klúbbinn Cirque du Soir í London með vinum sínum. Í þeim hópi var Jaden Smith, sonur Will Smith og Jödu Pinkett-Smith, og breska söngkonan Ella-Paige Roberts Clarke. Vandræðin byrjuðu með því að Jaden var neitað um inngöngu því hann er aðeins fjórtán ára. Justin og fylgdarlið hans reyndu eins og þau gátu að koma Jaden inn á klúbbinn en allt kom fyrir ekki. Í staðinn fyrir að halda áfram að skemmta sér ákvað Justin að yfirgefa klúbbinn með Jaden.

Sögurnar segja að Ella-Paige Roberts Clarke og Justin séu nýjasta parið í bænum.
Þetta kallar Justin versta afmælisdag allra tíma. Hann á margt eftir ólært þessi elska.

Reyndi að fela sig.
Þú gætir unnið - vertu með okkur á Facebook.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.