Leikjavísir

Fyrrum forstjóri Nintendo látinn

Haukur Viðar Alfreðsson skrifar
Yamauchi steig til hliðar sem forstjóri Nintendo fyrir rúmum áratug vegna hrakandi heilsufars.
Yamauchi steig til hliðar sem forstjóri Nintendo fyrir rúmum áratug vegna hrakandi heilsufars. mynd/getty
Japanski milljarðamæringurinn og fyrrverandi forstjóri Nintendo, Hiroshi Yamauchi, lést í dag, 85 ára að aldri.

Hann stjórnaði fyrirtækinu í 53 ár, frá 1949 til 2002, en afi hans stofnaði það árið 1889. Undir stjórn Yamauchi varð Nintendo að því tölvuleikjaveldi sem það er, en meðal afreka Yamauchi var framleiðsla Game Boy-leikjatölvunnar vinsælu, auk tölvuleikjanna Donkey Kong og Super Mario Bros.

Hann steig til hliðar sem forstjóri fyrir rúmum áratug vegna hrakandi heilsufars en hélt áfram störfum sem ráðgjafi.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.