Eva Lind Jónsdóttir reyndi þennan ljúffenga fiskrétt á dögunum en hún rak augun í uppskriftina hjá LKL-klúbbnum á netinu. Hún segir að þrátt fyrir að rétturinn sé einfaldur og fljótlegur í framkvæmd komi hann mjög skemmtilega á óvart.
Þorskur með möndlusmjöri
800 g þorskur eða annar hvítur fiskur
200 g möndluflögur
3 dl möndlumjöl
100 g smjör
Sítrónu-/limesafi
Salt og pipar
Byrjaðu á að bræða smjörið í potti og hrærðu svo möndlumjölinu rólega saman við svo úr verði þykk hræra.
Settu helminginn af möndluflögunum, smá sítrónusafa, salt og pipar saman við, smakkaðu það til. Settu síðan fiskinn í smurt eldfast mót og settu hræruna yfir og stráðu svo restinni af möndlunum efst.
Bakaðu í ofni í 25 mín á 180°C.
Berðu fram með fersku salati að eigin vali.