Sport

Lilja Lind Norðurlandameistari unglinga

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Lilja Lind Helgadóttir.
Lilja Lind Helgadóttir. Mynd/Lyftingasamband Íslands
Lilja Lind Helgadóttir varð í dag Norðurlandameistari unglinga í ólympískum lyftingum þeagr hún tryggði sér gull á Norðurlandamóti unglinga í Kaupmannahöfn.

Lilja Lind lenti í öðru sæti á síðasta ári en gerði betur í ár og tryggði sér gullið méð glæsibrag.

Lilja Lind lyfti 70 kílóum í snörun og 90 kílóum í jafnhendingu. Hún reyndi við Norðurlandametin (76 kíló í snörun og 94 kíló í jafnhendingu) en rétt missti bæði.

Ísland er með fjóra keppendur á mótinu og seinna í kvöld reynir Katrín Tanja Davíðsdóttir að verja Norðurlandameistaratitil sinn í flokki 20 ára og yngri.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×