Lífið

Hætt við að skilja í annað skipti

Þau Billy Ray Cyrus og Tish Cyrus hafa verið saman í 22 ár. Þau eru hætt við að skilja.getty/nordicphotos
Þau Billy Ray Cyrus og Tish Cyrus hafa verið saman í 22 ár. Þau eru hætt við að skilja.getty/nordicphotos
Foreldrar Miley Cyrus, Billy Ray Cyrus og Tish Cyrus, eru hætt við að skilja en þetta er í annað sinn á þremur árum sem hjónin hætta við skilnaðinn.

Billy Ray sótti um skilnað frá eiginkonu sinni árið 2010 en dró hann til baka nokkrum mánuðum síðar. Þá sótti Tish um skilnað í júní síðastliðnum og sagði ástæðuna vera óásættanlegan ágreining á milli þeirra hjóna. Hjónin hafa nú hætt við allt saman og eru þegar byrjuð í hjónabandsráðgjöf.

„Ég ræddi við Tish og hún sagði mér að það hefði runnið upp fyrir þeim að þau væru ástfangin og að þau vildu ekki skilja. Þau fóru nýverið í hjónabandsráðgjöf, eitthvað sem þau hafa aldrei gert í þau 22 ár sem þau hafa verið saman. Það virðist hafa hjálpað því þau eru mun nánari nú,“ sagði fréttamaður sjónvarpsstöðvarinnar E! og mikill vinur hjónanna, Ken Baker.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.