Gagnrýni

Dásamleg mynd um mjólkurbónda

Sara McMahon skrifar
Heimildamyndin um viðkunnalega bóndann Stephen Hook og kýrnar hans er dásamleg,
Heimildamyndin um viðkunnalega bóndann Stephen Hook og kýrnar hans er dásamleg,
Bíó: The Moo Man / Muu-maðurinn, Leikstjóri: Andy Heathcote, Leikarar: Stephen Hook og kýrnar hans.

Riff-hátíðin




Heimildamyndin um viðkunnalega bóndann Stephen Hook og kýrnar hans er dásamleg, falleg, fyndin og ljúfsár allt í senn. Hook rekur lítið mjólkurbú á Englandi og selur lífræna mjólk beint frá býli sínu. Samband hans við dýrin á bænum, hvort sem það eru kýrnar, nautin eða hundarnir, er einstakt enda gefur bóndinn sér tíma til að tala við dýrin, huga að þeim og kynnast hverju og einu. 



Myndin er ekki aðeins falleg saga um samband manns og dýra heldur einnig mjög fræðandi. Stephen fer óhefðbundnar leiðir í búskapnum; býli hans er töluvert minna en gengur og gerist og því hefur hann tíma til að sinna hverri kú sem skyldi, einnig ræðir hann um ástand mjólkurbúskapar á Englandi, en þau hafa átt erfitt uppdráttar undan farinn áratug. Að auki fræðist áhorfandinn töluvert um líf kýrinnar, sem á það til að vera óréttilega vanmetin.



Niðurstaða: Dásamleg heimildamynd í alla staði. 






Fleiri fréttir

Sjá meira


×