Bíó og sjónvarp

Íslensk-sænska myndin Hemma hlýtur verðlaun

Hanna Rún Sverrisdóttir skrifar
Þarna sést leikstjórinn taka við verðlaununum á hátíðinni.
Þarna sést leikstjórinn taka við verðlaununum á hátíðinni.
Sænsk-íslenska kvikmyndin Hemma, hlaut í gær áhorfendaverðlaunin, Pusan Bank Award, á alþjóðlegu kvikmyndahátíðinni Pusan. Hátíðin er ein stærsta og virtasta kvikmyndahátíðin í Asíu að sögn Guðrúnar Eddu Þórhannesdóttir, meðframleiðanda myndarinnar.

„Þetta er A hátíð, kvikmyndahátíðir eru settar í flokka, aðrar í þessum eru til dæmis kvikmyndahátíðin í Cannes og kvikmyndahátíðin í Berlín,“ segir Guðrún Edda. „Það eru um 218 þúsund manns sem fóru á hátíðina, þannig að fjöldinn er mikill sem sækir hana.“

Verðlaunaféð er 20.000 dollarar eða um tvær og hálf milljón íslenskra króna.

Leikstjóri myndarinnar er Maximilian Hult og framleiðendur myndarinnar eru Anna G. Magnúsdóttir og Anders Granstöm fyrir sænska framleiðslufyrirtækið Little Big Productions.

Íslenskir meðframleiðendur eru Guðrún Edda Þórhannesdóttir og Friðrik Þór Friðriksson fyrir Kvikmyndafélagið Hughrif ehf og framkvæmdastjórn var í höndum Tinnu Proppé.

Tökur á myndinni fóru fram á Eyrarbakka sumarið 2012 með íslensku tökuliði en stór hluti af aðstandendum myndarinnar eru Íslendingar.  Eftirvinnsla fór einnig öll fram hér á landi en myndin hlaut eftirvinnslustyrk frá Kvikmyndamiðstöð Íslands.

„Það var verið að frumsýna myndina þarna en hún fer í almennar sýningar hér á landi á næsta ári,“ segir Guðrún Edda.

Í myndinni segir frá einfaranum Lou, vel gefinni ungri konu sem býr með móður sinni í stórborg. Lou veit ekki betur en að þær eigi ekki aðra ættingja á lífi og er það því mikið áfall þegar hún fær fregnir af því að móðuramma hennar sé enn á lífi og að afi hennar sé nýlátinn. Gegn vilja móður sinnar ákveður Lou að fara í jarðarför afa síns og flytur til ömmu sinnar.

Hér er hægt að nálgast stiklu úr myndinni.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.