Lífið

Vík Prjónsdóttir meikar það í tískuheiminum

Ellý Ármanns skrifar
Meðfylgjandi myndir tók Hulda Sif í Bókasal Þjóðmenningarhússins á sýningu hönnunarfyrirtækisins Vík Prjónsdóttur á Hönnunarmars. Hönnunartvíeykið Eley Kishimoto hefur endurhannað Selsham Víkur Prjónsdóttur sem verður hluti af haustlínu hins fræga tískuhúss.

Sjá Selshaminn á heimasíðu Víkur hér.

"Þau hjá Hönnunarsafninu í London höfðu samband við okkur fyrir um ári og vildu gera eitthvað með okkur. Þau þekktu Eley Kishimoto og þá kom upp sú hugmynd að fá þau til að endurhanna Selshaminn okkar, líkt og Henrik Vibskov hafði gert árið 2008," sagði Guðfinna Mjöll Magnúsdóttir, sem rekur Vík Prjónsdóttur ásamt Brynhildi Pálsdóttur og Þuríði Rós Sigurþórsdóttur, um samstarfið í viðtali við Fréttablaðið 14. mars síðastliðinn.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.