Handbolti

Rándýrt að skipta um útlending

Stefán Árni Pálsson skrifar
Akureyri þarf að bæta margt fyrir næstu leiki.
Akureyri þarf að bæta margt fyrir næstu leiki. fréttablaðið/daníel
„Þetta hefur ekki gengið nægilega vel hjá okkur og það er margt sem við þurfum að skoða í okkar eigin leik,“ segir Heimir Örn Árnason, þjálfari Akureyrar, en liðið er í næst neðsta sæti Olís-deildar karla með fjögur stig eftir sex umferðir.

„Það sem hefur verið aðalmerki liðsins síðastliðin ár eru hraðar sóknir og auðveld mörk upp úr því en það hefur ekki verið til staðar á tímabilinu.“

Akureyri missti tvo sterka leikmenn fyrir tímabilið en Geir Guðmundsson og Guðmundur Hólmar Helgason gengu báðir til liðs við Val í sumar.

„Það var vissulega mikil blóðtaka og svo er Bergvin [Gíslason] enn frá vegna meiðsla sem gerir hlutina ekki auðveldari fyrir okkur.“

Heimir Örn fékk leikheimild með Akureyri á dögunum en hann hefur spilað með 1. deildarliðinu Hömrunum á tímabilinu.

„Hreinn Hauksson varð að hætta tímabundið handboltaiðkun af persónulegum ástæðum og því varð ég að koma á ný yfir í liðið til að styrkja varnarleikinn, en hann hefur alls ekki verið nægilega góður hjá okkur á tímabilinu.“

Serbinn Vladimir Zejak gekk til liðs við Akureyri fyrir tímabilið og hefur hann alls ekki staðið undir væntingum fyrir norðan.

„Hann hefur ekki verið nægilega öflugur og hefur lítið haft fram að færa fyrir liðið í þessum fyrstu leikjum. Zejak er ávallt mjög góður á æfingum hjá okkur og leggur sig alltaf fram en þetta er ekki að falla fyrir hann í leikjum.“ En kemur til greina að láta leikmanninn fara?

„Það er ekki svo auðvelt en það kostar um 450.000 krónur að fá leyfi fyrir leikmann í handboltanum. Þetta er ekki eins og í körfunni þar sem það gjald er mun lægra. Vonandi kemur hann til á næstu vikum.“

Akureyri mætir FH í Kaplakrika annað kvöld og þarf liðið í raun að eiga stórleik til að eiga möguleika í spræka Hafnfirðinga.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×