Lestu þetta ef þú finnur fyrir pirringi, streitu eða tómleika Ellý Ármanns skrifar 10. september 2013 13:00 Aníta Sigurbergsdóttir.
Aníta Sigurbergsdóttir er hamingjuþerapisti og sérfræðingur í frábæru týpunni en hún er stofnandi AnitaSig.com þar sem hún leitast við að hjálpa fólki um allan heim að umbylta sínu lífi með því að sleppa beislinu og leyfa sér að vera frábært, að öllu leyti eins og hún segir sjálf.Hjálpar frábæru fólki „Ég hjálpa frábæru fólki að ná þeim stað í lífinu að vera að vinna að draumum sínum og finna frá hjartarótum að vera hamingjusamt með sig sjálft, með lífið og alla aðra í kringum sig," segir Aníta spurð út á hvað starf hennar gengur.Spólar þú í eigin drullupolli?Ert þú þá alltaf frábæra, glaða týpan eða er eitthað sem gerir þig brjálaða? „Líf okkar allra er fullt af áskorunum og að sjálfsögðu koma erfiðir dagar. Það ergir mig þó fátt fyrir utan að sjá frábært fólk, uppfullt af hæfileikum og styrkleikum skemma fyrir sér, vinna á móti sér og sjá jafnvel ekki hversu frábært það er í raun og veru. Af hverju? Af því ég hef verið á þeim stað sjálf og komst ekki úr sporunum, spólandi í eigin drullupolli. Ég var harðákveðin að finna hvernig ég ætti að umbreyta mínu lífi; að losa mig við allan sjálfsefa, hræðslu og niðurrifshugsanir og sjá drauma mína rætast. Ég náði mér í gráðu í leiðtogaþjálfun og jákvæðri sálfræði og prófaði allt undir sólinni sem flokkast gat undir sjálfsrækt."Ekkert eitt hentar öllumErt þú þá markþjálfi eða „life coach”? „Ég er hvorki markþjálfi né „life coach" en þó hvoru tveggja. Aðstoð við markmiðasetningu og að vera spegill fyrir skjóstæðinga er órjúfanlegur þáttur en þó bara brot af því sem ég geri. Ég gef þér ramma til að fylgja; þú byrjar á reit A og færir þig á B og svo koll af kolli á leiðarenda. Á hverjum reit hefur þú hlaðborð og velur þau tæki og tól sem henta þér og þínum lífsstíl." „Sem dæmi má nefna að nauðsynlegur þáttur í að vera frábæra týpan er að róa hugann en það hentar ekki öllum að kyrja möntrur í hugleiðsluástandi. Sumir fara bara í sturtu og leysa gátur lífsins í leiðinni. Ég veit hvað þarf til og sýni þér leiðir að settu marki en svo er undir þér komið að gera tilraunir og finna hvað hentar. Ekkert eitt hentar öllum. Ég er þerapisti og það þýðir akademískur bakgrunnur, sannreynd aðferðafræði og faglegt starf. Ég nota aðferðir jákvæðrar sálfræði með þokkalegri skvettu af austrænni hugmyndafræði sem í framkvæmd þýðir að þú ferð að hugsa um og koma fram við þig eins og þú áttir alltaf að gera og þannig sérð þú smám saman hvað þú vilt í raun fá út úr lifinu og hvernig þú nærð í það. Umfram allt er að taka lífinu ekki of alvarlega, hlægja svolítið og hafa gaman af ferlinu. Hefur þú aldrei nægan tíma?Í hvaða aðstæðum leitar fólk til þín? „Hefur þér liðið eins og þú hafir ekki tíma til eins eða neins? Hefur neikvæða röddin í höfðinu á þér haft áhrif á hvernig þú hagar þér eða líður með sjálfan þig? Hugsar þú í raun og veru vel um þig eða ert þú kannski eilíflega að byrja og hætta í átaki eða megrun? Finnur þú fyrir pirring, streitu eða tómleika? Finnur þú ítrekað fyrir óánægju með þig, maka, vini eða vinnufélaga? Þetta eru dæmi um einkenni sem segja að nú sé tími til að staldra við." „Mínir skjólstæðingar eru heilbrigðir einstaklingar með fulla getu til að láta drauma sína rætast. Lífið hleður hins vegar á okkur áskorunum sem leggjast á okkur lag eftir lag ef við náum ekki að vinna vel úr þeim og smám saman týnum við veginum. Við þurfum að afhýða okkur eins og lauk til að ryðja leiðina að kjarnanum þar sem frábæra týpan á heima og greiða leið hamingjunnar frá hjartanu. Hamingjan er nefnilega alltaf þarna. Stundum kemst hún bara ekki út.Hvað er svo framundan hjá þér? „Ég er staðráðin í að gera þennan vetur að mínum besta og er að keyra allt í gang svo fleiri geti sagt hið sama. Ég er búin að eyrnamerkja tíma fyrir 15 mínútna fría fjarfundi í örstefnumótun. Stóra spurningin er: „hvað vantar í líf þitt núna?” Þeim sem eru tilbúnir að ganga alla leið og opna fyrir allt sem lífið hefur upp á að bjóða er velkomið að panta sínar fríu 15 mínútur. Það þarf þó að hafa hraðar hendur því tímarnir fara fljótt." „Þú ert frábær eins og þú ert, beint frá hjartanu. Sýndu hugrekki og vertu þú alla leið," segir Aníta áður en við kveðjum. Anitasig.com
Mest lesið Breytti nafninu sínu svo það yrði ekki brotist inn Lífið „Stal tannburstanum hans snemma í sambandinu“ Makamál Sonur Ringo Starr rekinn úr The Who Lífið Drógu saman um 74 prósent í samgöngukostnað Lífið Eyddi unglingsárunum inni í þvottahúsi Tónlist Patrik og Gústi í sundur: „Vinir, veit það ekki“ Lífið Fanney og Teitur greina frá kyninu Lífið Kærastan vill bara stunda kynlíf í bol Lífið Óvenjulegar móttökur þegar Icelandair lenti í Nashville í fyrsta inn Lífið Hátíðlegur páskamatseðill að hætti Móniku á Apótekinu Lífið Fleiri fréttir Fanney og Teitur greina frá kyninu Sonur Ringo Starr rekinn úr The Who Drógu saman um 74 prósent í samgöngukostnað Breytti nafninu sínu svo það yrði ekki brotist inn Ferðalög, heimsóknir eða huggulegheit heima framundan um páskana Hátíðlegur páskamatseðill að hætti Móniku á Apótekinu 100 áhrifamestu einstaklingar í heimi Óvenjulegar móttökur þegar Icelandair lenti í Nashville í fyrsta inn Breytt útlit Daða Freys vekur athygli Horfði á vin sinn fara í snjóflóði Falleg sérhæð í Hlíðunum Patrik og Gústi í sundur: „Vinir, veit það ekki“ Kærastan vill bara stunda kynlíf í bol Einn huggulegasti leikari landsins á lausu Unnur Eggerts afhjúpar nafn dótturinnar Skuggavaldið: Dýrð og dauði dansa saman í blóði og bjarma Sexfaldur Íslandsmeistari fékk ráð frá rándýru teymi og fór heim með eina milljón Geimferðin gagnrýnd: „Mér býður við þessu“ Kastaði Pétri og Sveppa fram og til baka í indverskri glímu Páskaleg og fersk marengsbomba Alls ekki öll von úti fyrir Væb-bræður Uppfyllti hinstu ósk ömmu sinnar „Afhverju myndi maður ekki vilja fara alla leið?“ Tilkynna leikara fyrir nýja Harry Potter þáttaröð Logi Þorvalds, Timothée Chalamet og Kylie í stuði á Coachella Bein útsending: Katy Perry fer út í geim Skandall sigraði í Söngkeppni framhaldsskólanna Blómin í veisluskreytingunni fara svo út í garð og blómstra áfram Stóra stundin runnin upp hjá Sigrúnu Ósk Stjörnulífið: Skvísurnar stálu senunni Sjá meira