Veiði

Góð laxveiði í Þjórsá

Garðar Örn Úlfarsson skrifar
Einar Haraldsson bóndi á Urriðafossi stendur í stórræðum um þessar mundir við netaveiði í Þjórsá. Veiða má í fimmtíu daga á eitt hundrað daga tímabili. Laxinn er seldur í verslanir í Reykjavík og í dag fer reynslusending frá Urriðafossi til London.
Einar Haraldsson bóndi á Urriðafossi stendur í stórræðum um þessar mundir við netaveiði í Þjórsá. Veiða má í fimmtíu daga á eitt hundrað daga tímabili. Laxinn er seldur í verslanir í Reykjavík og í dag fer reynslusending frá Urriðafossi til London. FRéttablaðið/GVA
„Það hefur gengið mjög vel,“ segir Einar Haraldsson, bóndi á Urriðafossi, um laxveiði sumarsins í Þjórsá.

Góður afli á leið í hús.Fréttablaðið/GVA
Urriðafoss á netalagnir við samnefndan foss og einnig neðar í ánni. Einar segir meðalveiði allra 160 jarðanna í veiðifélagi Þjórsár vera um fjögur þúsund laxa á sumri. Dágóður hluti aflans sé dreginn á land á jörðunum þremur beggja vegna við Urriðafoss.

Einar ekur með aflann til Reykjavíkur þar sem hann er seldur í Melabúðinni. „Reyndar er að fara í fyrsta skipti dálítil prufusending með flugi til London,“ upplýsir hann. Sending fer utan í dag. Einar kveðst ekki vita til þess að aðrir netabændur sendi lax utan með flugi.

Strigapoki tók við laxinum sem Einar bar síðan á bakinu upp á bakka. Urriðafoss skartar sínu fegursta.Fréttablaðið/GVA
Netaveiðin í Þjórsá er bæði þung í vöfum og hættuleg því straumurinn er stríður og iðuköstin öflug. Laxinn þarf síðan að bera um grýtta bakka upp frá ánni.

Einar bóndi losar spriklandi laxa úr neti sínu neðan við Urriðafoss. Meðalvigt laxanna í Þjórsá er um fimm pund.Fréttablaðið/GVA
Einar, sem er fæddur og uppalinn á Urriðafossi, neitar því ekki að gaman geti verið að vitja um netin. „Það er þó kannski ekkert endilega skemmtilegt að bera upp fleiri tugi kílóa af laxi - en allt er þetta bara vinna,“ segir bóndinn á Urriðafossi.






×