Bílar

Þrír stórir og nýir frá Mercedes-Benz

Finnur Thorlacius skrifar
Mercedes Benz atvinnubílar.
Mercedes Benz atvinnubílar.
Bílaumboðið Askja frumsýnir þrjá nýja atvinnubíla á sérstökum atvinnubíladegi á morgun, laugardag kl. 12-16. Þetta eru nýjar gerðir af Mercedes-Benz Sprinter, Atego og Actros sem eru vel þekktir atvinnubílar. Forverar þeirra hafa reynst áreiðanlegir og fjölhæfir. Þrátt fyrir gott afl eru nýju bílarnir með umhverfismildari og eyðslugrennri vélar en áður og standast því Euro 6 umhverfisstaðalinn.

Atego hefur fengið nýtt útlit og nýjar vélar. Annars vegar er 4 strokka 5,2 lítra vél sem hægt er að fá í 156 til 231 hestafla útgáfum og hins vegar öflug 6 strokka 7,7 lítra vél sem hægt er að fá í 238 til 299 hestafla útgáfum. Nú er í boði 8 gíra „powershift“ gírkassi í Atego og einnig er hægt að fá mjög kraftmikla mótorbremsu og rafmagnshamlara í þennan vinsæla millistærðarbíl. Atego er oftast notaður sem sendibíll en hægt er að fá hann í mörgum gerðum, heildarþungi frá 6,5 til 16 tonna, fjórhjóladrifinn og í dráttarbíla- og slökkvibílaútgáfu, svo eitthvað sé nefnt.

Actros hefur verið endurhannaður frá grunni og er útbúinn öflugum vélum sem standast EURO 6 mengunarstaðilinn. Aðallega eru í boði þrjár vélar sem eru 10,7, 12,8 og 15,6 lítra að rúmtaki en samtals koma þær í 11 aflútgáfum, þar sem aflmesta vélin er 625 hestöfl. Margir gírkassar eru í boði, en „powershift“ útfærslan er vinsælust. Stærð og útbúnaður ökumannshússins er eins og allra best verður á kosið.

Sprinter hefur fengið nýtt útlit á framenda og nýja innréttingu. Bíllinn er með nýjan öryggisbúnað sem hjálpar ökumanni við ýmsar aðstæður, m.a. í hliðarvindi. Að auki er hann þremur sentimetrum lægri en eldri bíllinn til að draga úr eldsneytiseyðslu og útblæstri. Sprinter er í boði með með 2,1 lítra, fjögurra strokka dísilvél, með túrbínu sem skilar frá 95 - 163 hestöflum og togið er frá 250 - 360 Nm. Hann er einnig með afar kraftmikilli 3 lítra V6 dísilvél með túrbínu sem skilar 190 hestöflum og togið er 440 Nm. Vélarnar eru í báðum tilvikum sparneytnari og umhverfismildari en í eldri gerðum bílsins.

„Allir atvinnumenn þekkja vinnuþjarkana frá Mercedes-Benz og vita hvað þeir standa fyrir hvað varðar gæði, þægindi, endingu og hagkvæman rekstur. Þetta eru spennandi bílar í stækkandi atvinnubílaflota Mercedes-Benz. Þeir eru allir mjög öflug vinnutæki sem henta vel við ólíkar aðstæður,“ segir Agnar Daníelsson, sölustjóri Mercedes-Benz atvinnubíla hjá Öskju.






×