Lífið

Ein stjarna á hverju plaggati við það að fá fullnægingu

Nýjasta kvikmynd úr smiðju Lars Von Trier, Nymphomaniac, fer óhefðbundnar leiðir í kynningu á nýjustu mynd leikstjórans.

Nú hafa verið gefin út plaggöt með myndum af aðalpersónum myndarinnar - ein stjarna á hverju plaggati við það að fá fullnægingu. 

Myndin hefur vakið athygli fyrir svo grófar kynlífssenur að tölvutækni er notuð til að klippa höfuð aðalleikaranna við klámmyndaleikara, sem sjá um grófustu atriðin í myndinni. 

Í myndinni leikur Charlotte Gainsbourg kynlífsfíkilinn Joe, sem segir erótíska sögu sína frá fæðingu til fimmtugs. 

Nymphomaniac verður frumsýnd í Danmörku um jólin, en það verður að öllum líkindum ljósbláa útgáfan af myndinni þar sem Lars Von Trier vill geyma grófari útgáfuna fyrir Cannes.



Vefur Guardian hefur efnt til kosninga um besta plaggatið - en hér er hægt að taka þátt í kosningunni.

Hér að neðan fylgir stikla úr myndinni.










Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.