Veiði

Afsláttur í Heita pottinum

Kristján Hjálmarsson skrifar
Frá Galtalæk. Hægt er að fá afslátt á veiði í Galtalæk í Heita pottinum á agn.is.
Frá Galtalæk. Hægt er að fá afslátt á veiði í Galtalæk í Heita pottinum á agn.is. Mynd/Trausti Hafliðason
Á vefsíðunni Agn.is er boðið upp á tilboð í nokkrum ám í svokölluðum Heita potti. Þar er boðið upp á stangir á afslætti þar sem stutt er orðið í veiði

Í Heita pottinum nú er boðinn afsláttur á stakar stangir dagana 5. - 7. apríl. Tilboðin eru sem hér segir:

  • Ásgarður, silungasvæði - veiðihúsið fylgir ekki tilboðinu.
  • Galtalækur.
  • Tannastaðatangi - veiðihús fylgir ekki tilboðinu.
Þá er boðið upp á tilboð á veiðileyfum á silungasvæði Tungufljóts dagana 5. - 14. apríl.

Samkvæmt agn.is verður boðið reglulega upp á Heita pottinn í sumar. Athugið að tilboðin gilda aðeins í vefsölu! Sjá agn.is.






×