Notar maskara sem þykkir og lengir augnhárin Ellý Ármanns skrifar 29. janúar 2013 11:15 Ljósmynd/Björg Vigfúsdóttir
Steinunn Vala Sigfúsdóttir hönnuður og eigandi Hring eftir hring ehf er glæsileg kona. Hún segir okkur hvaða snyrti- og hárvörur hún notar. "Ég á í raun frekar lítið af snyrtivörum og nota þær hóflega. Ég er ákaflega vandlát á snyrtivörur og hef eytt drjúgum tíma, vangaveltum og aur í að finna þessar vörur sem ég mæli hér með. Ég fylgi ráðum sérfræðinga sem hafa reynst mér vel og ég treysti, eins og Tótu Sifjar sminku og sérfræðings hjá Bobbi Brown og Fríðu Maríu sminku, sem báðar hafa hjálpað mér við leitina af gullmolunum. Ég held mig svo við það sem ég finn að hentar mér og get notað sama ilmvatnið, sjampóið og dagkremið svo árum skiptir. Annars þykir mér fátt dásamlegra en góður ilmur, falleg hárgreiðsla, naglalakk á höndum og tám, mildur gljái á beru skinni og frískleg förðun," segir Steinunn Vala. "Þessar snyrtivörur hef ég notað um þó nokkurt skeið. Þetta er það sem ég tek með mér hvert sem ég fer og dugar mér til allra athafna, hvort sem er á sumrin eða veturna.""Ég hef prufað þó nokkuð mörg krem og líka prufað að nota einungis hreina kókosolíu á húðina. Andlitsvörur frá Bobbi Brown hafa reynst mér allra best og þessi krem henta vel, en ég er með fremur viðkvæma og næma húð sem verður þurr á veturna." "Á sumrin nota ég Hydrating Face Cream frá Bobbi Brown. Þetta krem er hreinn unaður. Lyktin er svo hrein og heilnæm. Mér finnst húðin hitna örlítið undan kreminu og verða rjóðari og frísklegri." "Á veturna skipti ég yfir í annað krem frá Bobbi Brown sem gefur meiri raka og heitir EXTRA Repair Moisturizing Balm SPF 25. Ég nota stundum næturkrem samhliða dagkreminu sem heitir Hydrating Intense Night Cream." "Það er eitthvert dásamlegt undraefni í þessum þremur kremum sem ég kann ekki að nefna. Þegar ég hyrði vel um húðin, þvæ mér kvölds og morgna og ber krem á hana finnst mér hún miklu mýkri og hreinni en annars. Litlir fílapenslar á nefi hverfa alveg og þurrir blettir.""Ég nota aldrei meik en nota alla daga litað dagkrem frá Bobbi Brown sem heitir Tinted Moisturizer og er æðislegt. Það jafnar litinn á húðinni nægilega mikið, þurrkar hana ekki, inniheldur sólarvörn og gefur frísklegt útlit." "Ég hef líka notað Face and Body Foundation frá MAC sem er þunnfljótandi litur sem ég þoli vel og hægt er að bera á andlit, háls og bringu í þunnu lagi.""Yfir litaða dagkremið bæti ég alltaf roða í kynnarnar með roða, eða blush frá MAC og Bobbi Brown, en þá er bæði hægt að setja á varir og á kynnar. Þessir litir eru í uppáhaldi hjá mér: Calypso Coral og Powder Pink frá Bobbi Brown, - líka fallegt að blanda þeim saman, og Something Special frá MAC.""Í mörg ár hef ég notað þennan High Impact Mascara frá Clinique. Hann þykkir og lengir augnhárin og er þeim eiginleikum búinn að hann þrífst auðveldlega af. Volgt vatn í lófa nægir og það þykir mér frábært.""Undanfarið hef ég notað blautan augnpensil frá Yves Saint Laurent sem heitir Schocking og auðvelt er að beita. Ég set gjarnan þykka svarta línu á efra augnlokið og þá verð ég nógu fín fyrir hvaða tilefni sem er. Ég hef mjög gaman af því að spreyta mig á penslinum og það er hægt að ná fram ólíkri stemmningu eftir því hvernig línan er gerð. ""Ég nota Beach olíu frá Bobbi Brown á líkamann. Lyktin af henni er myld og ótrúlega góð og húðin fær á sig mildan gljáa. Gljáinn getur gert undraverk við axlir, handleggi og fótleggi. Ég elska þessa olíu.""Ég get hvorki hugsað mér að vera án hennar, né ilmvatnsins míns sem heitir Pétite Cherie og kemur frá hinni frönsku Annick Goutal.""Mér hefur lengi þótt hárið mitt til ama. Hárin eru afar fíngerð og klofna auðveldlega. Ég þarf því að klippa það reglulega og það er ákaflega viðkvæmt fyrir litun og þess háttar kúnstum. Guðrún Halldórs og Theodóra Mjöll sem báðar eru hjá Rauðhettu og Úlfinum hafa séð um hárið mitt síðustu misseri og fundu góða lausn fyrir mig, sem er að sleppa litun en setja aðeins skol í hárið í staðinn, nota mild sjampó sem gefa lyftingu og á móti því Moroccanoil sem ver og sléttir úr endunum. Ég nota blásarann og krullujárnið til að gefa því meira líf."
Mest lesið Lét sauma bangsa úr fötum látins sonar síns Lífið „Undrabarn“ keppir á undanþágu og tekur pabba í kennslustund Lífið Frestar tónleikaferðalagi vegna andláts Payne Lífið Birta Líf og Gunnar eiga von á dóttur Lífið Krakkatían: Flugfélög, landafræði og krakkalög Lífið María Thelma og Steinar Thors héldu brúðkaup ársins Lífið Flautað á dúfurnar á Eyrarbakka og þær koma heim Lífið „Hugleikið hver fær að stunda kynlíf og hver ekki“ Tónlist Er alltaf hrædd Lífið Faðir Payne las minningarorð og þakkaði aðdáendum Lífið Fleiri fréttir Birta Líf og Gunnar eiga von á dóttur Frestar tónleikaferðalagi vegna andláts Payne Lét sauma bangsa úr fötum látins sonar síns Krakkatían: Flugfélög, landafræði og krakkalög „Undrabarn“ keppir á undanþágu og tekur pabba í kennslustund Flautað á dúfurnar á Eyrarbakka og þær koma heim Faðir Payne las minningarorð og þakkaði aðdáendum Fréttatía vikunnar: Pólitík, andlát og bíó María Thelma og Steinar Thors héldu brúðkaup ársins Cheryl kvartar yfir fjölmiðlaumfjöllun um Liam Payne Bar fyrir sig að hafa eitt sinn verið í strákabandi Litfögur íbúð með mikinn karakter Haustförðunin sem hefur slegið í gegn á TikTok Þetta eru höfundar Áramótaskaupsins 2024 Níu ára og notar hestastudda sálfræðimeðferð til að komast yfir hamfarirnar Rekinn af útgáfunni stuttu fyrir andlátið Bingó í beinni á sunnudag Er alltaf hrædd One Direction sendir frá sér yfirlýsingu: „Við erum algjörlega miður okkar“ Stuðningur fjölskyldunnar ekki sjálfsagður Frumkvöðull í Detroit teknói í Gamla bíó í nóvember Þorvaldur Davíð og Hjálmar Örn í eina sæng Fjölskylda Liam Payne biður um andrými Malín Agla og Svavar eiga von á öðru barni „Ef ég á að vera hreinskilin þá var þetta bara svæsið einelti“ Símtal í neyðarlínu varpar ljósi á atburðarásina Harðlega gagnrýnd fyrir að birta myndir af líki Liam Payne Loka Sæbraut á laugardag vegna kvikmyndatöku Liljan er vinsælasta lagið á Dalvík Stjörnurnar minnast Liam Payne: „Þessar fréttir eru hrikalegar, ég er orðlaus“ Sjá meira