Leikjavísir

PlayStation 4 kynnt til leiks eftir 16 daga?

Japanski tölvuleikjaframleiðandinn Sony kynnir nýjustu útgáfuna af PlayStation tölvunni í New York þann 20. febrúar næstkomandi. Tölvan mun bera nafnið PlayStation 4 og er nýjasta kynslóð leikjatölvunnar.

Sony hafa boðið blaðamönnum á „viðburð" þar sem rætt verður um „framtíð PlayStation" eins og það er orðað. Ekki hefur verið staðfest af fyrirtækinu að PlayStation 4 verði kynnt til leiks, en sérfræðingar á þessu sviði segja það nánast öruggt.

Það sem rennir stoðum undir þessa kenningu að mati blaðamanna, er að samkeppnisaðilinn, Microsoft, muni kynna nýja Xbox tölvu á E3-ráðstefnunni í Los Angeles í júní á þessu ári. Þá hafi Nintendo einnig kynnt Wii U í haust.

Á þeim síðum sem fjallað er um málið, eru allir blaðamenn öruggir á því að PlayStation 4 verði kynnt til leiks.

Ýmsar getgátur eru uppi með nýju tölvuna, til að mynda eru nokkrir sem halda því fram að mögulegt verði að spila leiki í 240 römmum á sekúndu. Ef það er rétt, þá er það gífurleg þróun frá síðustu kynslóð, því PlayStation 3 og Xbox 360 sýna 30 til 60 ramma á sekúndu.

Þó tölvan verði kynnt til leiks í febrúar er líklegt að hún verði ekki fáanleg fyrr en í haust, eða á næsta ári.

PlayStation 3 tölvan kom út árið 2005 og PlayStation 2 tölvan árið 2000.

Hér að ofan má sjá „kynningarmyndbandið" sem Sony gaf út varðandi blaðamannafundinn síðar í þessum mánuði.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×