Stefndi kannast ekkert við þennan Gunnar Stígur Helgason skrifar 23. maí 2013 06:00 Sigurjón Þ. Árnason. „[
S]tefna máls þessa er sögð hafa verið birt á heimili stefnda klukkan 21.18 að kvöldi föstudagsins 5. október 2012 fyrir einhverjum Gunnari Birkissyni, sem er sagður hafa verið staddur þar. Stefndi kannast ekkert við þennan Gunnar Birkisson.“ Svo segir í greinargerð Sigurjóns Þ. Árnason, fyrrverandi bankastjóra Landsbankans, í máli slitastjórnar bankans gegn honum og tveimur öðrum fyrrverandi starfsmönnum, Steinþóri Gunnarssyni og Yngva Erni Kristinssyni. Í málinu, sem Fréttablaðið sagði frá í gær, er þremenningunum stefnt til að greiða þrotabúi Landsbankans 1,2 milljarða vegna kaupa bankans á bréfum í bankanum sjálfum, Eimskipum og Straumi frá nóvember 2007 og fram í júlí 2008. Sigurður G. Guðjónsson, lögmaður Sigurjóns, byggir meðal annars á því í greinargerð sinni vegna málsins að krafan sé í raun fyrnd, enda hafi stefnan ekki verið birt Sigurjóni með lögmætum hætti síðasta haust. Fram kemur á birtingarvottorði stefnunnar að áðurnefndur Gunnar Birkisson hafi tekið við stefnunni á heimili Sigurjóns að Granaskjóli. Sigurjón kveðst sem áður segir ekki kannast við manninn, sem hafi aukinheldur ekki haft samband við hann til að koma á hann stefnunni. Þá segir í greinargerðinni að Sigurjón hafi verið erlendis ásamt fjölskyldu sinni þegar stefnan eigi að hafa verið birt, húsið mannlaust og að af upptökum úr öryggismyndavélum að dæma hafi enginn komið að húsinu þennan dag.
Tengdar fréttir Landsbankamenn krafðir um 1,2 milljarða Slitastjórn Landsbankans hefur stefnt þremur fyrrverandi starfsmönnum bankans til að greiða þrotabúinu samtals 1,2 milljarða króna vegna hlutabréfakaupa árin 2007 og 2008. 22. maí 2013 06:00 Mest lesið Átta sagt upp hjá Arion banka Viðskipti innlent „Myndi alveg segja að hjartað í mér hafi verið í buxunum“ Atvinnulíf Icelandair hækkað um ríflega fjórðung Viðskipti innlent Hagnaður félags Björns Braga dróst verulega saman Viðskipti innlent Sátt Eimskipa við Samkeppniseftirlitið kom Samskipum ekki við Viðskipti innlent Óvíða sem flugstarfsemi er jafn stór þáttur í efnahagslífi þjóðar Viðskipti innlent Rúv tapað nærri hálfum milljarði á árinu Viðskipti innlent Spá verðbólgu undir fjórum prósentum á næsta ári Viðskipti innlent Ummæli seðlabankastjóra „skringileg“ Viðskipti innlent Icelandair fyrsta samstarfsflugfélag bandarísks risa Viðskipti innlent Fleiri fréttir Sátt Eimskipa við Samkeppniseftirlitið kom Samskipum ekki við Óvíða sem flugstarfsemi er jafn stór þáttur í efnahagslífi þjóðar Spá enn einum fundinum án breytingar Icelandair hækkað um ríflega fjórðung Munu fljúga til Nashville næsta sumar Rúv tapað nærri hálfum milljarði á árinu Átta sagt upp hjá Arion banka Bein útsending: Ársfundur Orkustofununar á Akureyri Hagnaður félags Björns Braga dróst verulega saman Ummæli seðlabankastjóra „skringileg“ Icelandair fyrsta samstarfsflugfélag bandarísks risa Spá verðbólgu undir fjórum prósentum á næsta ári Fjármálaeftirlitið samþykkir samruna Landsbankans og TM Verður framkvæmdastjóri á hugbúnaðarsviði Origo Geta veitt fyrirtækjum hagstæðari lán Telur vaxtahækkanir viðskiptabankanna brattar Bein útsending: Haustráðstefna Stjórnvísi – Snjöll framtíð Þrálát verðbólga og hægari vöxtur geti skapað áskoranir fyrir fjármálakerfið Hrönn, Viktor og Þórdís til Varðar Ísak Einar til Samtaka atvinnulífsins Andri aðstoðarframkvæmdastjóri Júní Sunna veitir Livio samkeppni í frjósemi Enn eitt félag Quangs gjaldþrota Svekktur en ekki hissa á færri íbúðum í byggingu Færri íbúðir í byggingu en fyrir ári Gengi Icelandair flaug upp á við Vill laða að lágverðsverslun á Krókinn Spá 7,5 prósent stýrivöxtum í lok 2025 Fura Ösp nýr formaður stjórnar hjá Brandenburg Tekur við stöðu forstöðumanns þjónustu hjá Reitum Sjá meira
Landsbankamenn krafðir um 1,2 milljarða Slitastjórn Landsbankans hefur stefnt þremur fyrrverandi starfsmönnum bankans til að greiða þrotabúinu samtals 1,2 milljarða króna vegna hlutabréfakaupa árin 2007 og 2008. 22. maí 2013 06:00