Veiði

Komið að kaflaskilum segir Þröstur

Garðar Örn Úlfarsson skrifar
Þröstur Elliðason með lax úr Steinboga í Jökulsá á Dal.
Þröstur Elliðason með lax úr Steinboga í Jökulsá á Dal. Mynd / Strengir.
Þröstur Elliðason í Strengjum spáir verðlækkun á stangveiðileyfum samfara samdrætti í veiði og minnkandi eftirspurn. Staðan sé erfið.

"Almennt er salan minni í heild sinni," segir Þröstur Elliðason eigandi Veiðiþjónustunnar Strengja um söluhorfurnar fyrir komandi veiðitímabil.

"Ég sé fram á samdrátt í Breiðdalsá og Hrútafjarðará, en það verður svipað í Minnivallalæk og verið hefur undanfarin ár sýnist mér," segir Þröstur sem sér hins vegar góða þróun í sölunni á Jöklusvæðinu við Héraðsflóa

"Jökla er með aukningu í eftirspurn enda með hóflegra verð og veiðin er á uppleið þar," segir Þröstur og minnir á nýja fiskistigann við Steinboga í Jöklu. "Lax ætti að geta gengið upp Steinbogann hindrunarlaust næsta ár eins og reynslan sýndi í ágúst eftir opnun hans 1 ágúst."

Aðspurður um þróunina að undanförnu í útboðsmálum og verðþróun stangveiðileyfa segir Þröstur að staðan í heild sinni sé erfið.

"Samningar eru fastir til nokkurra ára til landeigenda og yfirleitt með verðtryggingu til hækkunar á sama tíma og veiðileyfin, ef eitthvað er, eru að lækka til kúnnans. Kostnaður vegna reksturs veiðihúsa hækkar líka án þess að hægt sé að hækka gisti og/eða fæðisgjald á milli ára," segir Þröstur sem kveðst telja komið að kaflaskilum:

"Það munu sjást lækkanir á veiðileyfaverðum og árleigum á næstu árum nema það smelli hreinlega í nýja metveiði í sumar - sem ég efa," segir Þröstur. Hann búist þó ekki við að það sjáist jafn slappar tölur og sumarið 2012 heldur verði veiðin upp á við næsta sumar, að minnsta kosti í smálaxi. "Nema ástand sjávar sé orðið gjörbreytt til hins verra af einhverjum ástæðum, en við sjáum til," segir veiðileyfasalinn og fiskifræðingurinn Þröstur Elliðason.






×