Lífið

Naomi Campbell ánægð með edrú lífið

Naomi Campbell lét hafa eftir sér í viðtali á dögunum að hún væri mun ánægðari með lífið eftir að hún hætti að drekka áfengi. Hún telur að áfengi hafi haft mikil áhrif á skapsveiflur sínar, en fyrirsætan er þekkt fyrir mikinn skapofsa. Ekki er langt síðan Naomi snéri sér aftur að fyrirsætustörfum, en hún hefur haft hljótt um sig síðasta árið og segist hafa tekið þann tíma í að vinna í sjálfri sér.

Naomi var þekkt fyrir reiðisköst á opinberum vettvangi, en segist nú vera komin yfir á beinu brautina.





Fleiri fréttir

Sjá meira


×