Tónlist

Útgáfutónleikar á LUV-deginum

"Það hittist þannig á að í dag er LUV-dagurinn, sem er til minningar um frænda minn Hermann Fannar Valgarðsson, eða Heimma feita eins og hann var kallaður. Ég lofa því að það verður mikil ást og friður í loftinu á tónleikunum í kvöld," segir tónlistarmaðurinn Friðrik Dór, sem heldur útgáfutónleika sína á skemmtistaðnum Faktorý í kvöld.

Önnur breiðskífa hans, Vélrænn, kom út í lok október í fyrra og fékk góðar viðtökur, bæði hjá gagnrýnendum og aðdáendum. "Ég komst aldrei í það að halda útgáfutónleika vegna anna í skólanum í lok síðasta árs. Þannig ég ætla að gera þetta almennilega núna á þessum fallega degi og góða ári 2013. Þetta verður skemmtilegt," segir Friðrik Dór.

Hann segir tónleikana verða með einföldu sniði, rapparinn Immo kemur til með að hita upp og svo "verður þetta bara keyrsla og stemming." Þá mun rapparinn Helgi Sæmundur úr hljómsveitinni Úlfur Úlfur, einnig stíga á stokk með Friðriki Dór í einu lagi.

Húsið opnar klukkan 22 í kvöld og er hægt að kaupa miða á midi.is og einnig á staðnum, ef húsrúm leyfir.

Tónleikarnir á Facebook.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.