Bílar

Japanskir bílar enn áreiðanlegastir

Finnur Thorlacius skrifar
Toyota bílar í röðum
Toyota bílar í röðum
Á hverju ári birtir Consumer Reports í Bandaríkjunum lista yfir þá bílaframleiðendur sem framleiða áreiðanlegustu bíla sem seldir eru þarlendis. Ekki kemur á óvart að japanskir bílaframleiðendur eru afar áberandi á topp 10 listanum og eiga þar 7 fulltrúa.

Lexus trónir efst, svo Toyota og Acura, lúxusmerki Honda, er í þriðja sæti. Audi er efst evrópskra framleiðenda í 4. sæti listans og hækkar sig um fjögur sæti frá því í fyrra. Mazda og Infinity, lúxusmerki Nissan, eru svo í fimmta og sjötta sæti listans og Volvo í sjöunda.

Enn einn japanski framleiðandinn er svo í áttunda sætinu, þ.e. Honda og Subaru er í tíunda. Milli þeirra í níunda sætinu er GMC, eitt bandarískra merkja á topp 10 listanum.

Scion, sem er í eigu Toyota og framleiðir bíla sem höfða eiga til yngri kynslóðarinnar í Bandaríkjunum, hrundi hressilega niður listann á milli ára og er nú í 11. sæti en var í 2. sæti í fyrra. Subaru féll um 5 sæti og Nissan féll um 9 sæti og vermir nú 22. sæti listans og sker sig því úr frá öðrum japönskum framleiðendum.

Benz og BMW hækkuðu sig bæði um eitt sæti og eru nú í 13. og 15. sæti. Buick hækkaði um 9 sæti og er nú í 12. sæti listans. Í könnun Consumer Reports voru bílar kannaðir í 18 mismunandi flokkum bíla og voru efstu bílar í 14 flokkum frá Japan og evrópskir bílar voru á toppnum í hinum 4 flokkunum.

Enginn bíll frá bandarískum framleiðanda vann neinn af þessum 18 flokkum og er það áhyggjuefni fyrir þetta mikla bílaframleiðsluland. 







×