Sport

Murray beið lægri hlut í endurkomuleiknum

Kolbeinn Tumi Daðason skrifar
Murray vann sigur á Wimbledon síðastliðið sumar.
Murray vann sigur á Wimbledon síðastliðið sumar. Nordicphotos/AFP
Andy Murray mátti sætta sig við tap gegn Frakkanum Jo-Wilfried Tsonga á móti í Abu Dhabi í gær.

Leikurinn var sá fyrsti hjá Skotanum í tæpt hálft ár. Murray gekkst undir aðgerð á baki í september og hefur æft stíft undanfarnar vikur. Fyrra settið fór 7-5 fyrir Frakkann og það síðara 6-3.

Murray var þokkalega ánægður með frammistöðuna og taldi hana aðeins munu batna með fleiri leikjum. Hann mætir í Stanislas Wawrinka í baráttunni um fimmta sætið á föstudag.

Wawrinka tapaði fyrir David Ferrer sem mætir landa sínum Rafael Nadal í undanúrslitum. Í hinni undanúrslitaviðureigninni mætir Tsonga Serbanum Novak Djokovic.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×