Bíó og sjónvarp

Grófar kynlífssenur í nýjustu stiklunni frá Lars Von Trier

Stikla í fullri lengd er nú loksins búið að gefa út fyrir nýjustu kvikmynd úr smiðju Lars Von Trier, Nymphomaniac.

Myndin hefur vakið athygli fyrir grófar kynlífssenur. Þannig var tölvutækni notuð til að klippa höfuð aðalleikaranna við klámmyndaleikara, sem sáu um grófustu atriðin í myndinni.

Einnig hefur Von Trier farið óhefðbundnar leiðir í kynningu á kvikmyndinni, meðal annars með því að gefa út plaggöt með myndum af aðalpersónum myndarinnar þar sem ein stjarna á hverju plaggati er við það að fá fullnægingu.



Í myndinni leikur Charlotte Gainsbourg kynlífsfíkilinn Joe, sem segir erótíska sögu sína frá fæðingu til fimmtugs. Auk hennar koma fram í myndinni Shia LaBeouf, Stellan Skarsgard, Jamie Bell, Uma Thurman og Christian Slater.



Nymphomaniac verður frumsýnd í Danmörku þann tuttugusta og fimmta desember, en það verður að öllum líkindum ljósbláa útgáfan af myndinni þar sem Lars Von Trier vill geyma grófari útgáfuna fyrir Cannes. Sagan segir að sú útgáfa sé fimm tíma löng.

Stiklan fylgir fréttinni.










Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.