Bíó og sjónvarp

Fullorðið fólk og Strumpar á hvíta tjaldið

Gamanmyndin Grown Ups 2 skartar fjölda þekktra leikara í aðalhlutverkum.
Gamanmyndin Grown Ups 2 skartar fjölda þekktra leikara í aðalhlutverkum.
Í gamanmyndinni Grown Ups 2, sem frumsýnd var í gær, fá áhorfendur að endurnýja kynni sín við persónurnar úr Grown Ups. Í framhaldsmyndinni hefur Lenny, sem leikinn er af Adam Sandler, fengið sig fullsaddan af stórborgarlífinu og flytur með fjölskyldu sinni aftur til heimabæjar síns. Þar hittir hann fyrir vini sína, gömul hrekkjusvín, ölvaða lögreglumenn á skíðum og gamlar kærustur.

Myndin, sem er fyrsta framhaldsmynd Sandlers, var frumsýnd í Bandaríkjunum þann 12. júlí og halaði inn rúmlega fjörtíu milljónum dollara fyrstu sýningarhelgina. Leikstjóri myndarinnar, Dennis Dugan, á í nánu samstarfi við Sandler og hafa þeir meðal annars unnið saman að gerð myndanna Happy Gilmore, Big Daddy, I Now Pronounce You Chuck and Larry, You Don‘t Mess with the Zohan, Grown Ups, Just Go with It, Jack and Jill og nú síðast Grown Ups 2.

Strumparnir 2 verður að auki alheimsfrumsýnd hér á landi á sunnudag og lenda í þetta sinn í enn meiri ævintýrum en áður. Alvöru strumpur verður viðstaddur frumsýninguna sem og leikararnir sem ljá litlu, bláu fígúrunum raddir sínar.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.