Lífið

Noel Gallagher með eyrnasuð

noel gallagher Gítarleikarinn þjáist af eyrnasuði.nordicphotos/Getty
noel gallagher Gítarleikarinn þjáist af eyrnasuði.nordicphotos/Getty
Noel Gallagher þjáist af eyrnasuði, samkvæmt niðurstöðu lækna.

Fyrrverandi gítarleikari Oasis er ekki sá eini sem glímir við þennan kvilla því Chris Martin úr Coldplay og Pete Townsend úr The Who, ásamt fjölda annarra tónlistarmanna, heyra mikið suð í eyrunum þrátt fyrir að þögn sé í kringum þá.

„Ég held að þetta sé vegna þess að ég hef spilað á gítar síðustu tuttugu ár. Þetta er samansafn af mörgum hlutum en ég hef skemmt mér vel á meðan, þannig að ef ég dey úr heilasjúkdómi verður það þess virði,“ sagði Gallagher við Talksport.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.