Felix og Reynir Þór fara Alla leið 20. febrúar 2013 14:00 Reynir Þór Eggertsson og Felix Bergsson. "
Við verðum tveir fastir og fáum tvo mismunandi gesti í hvern þátt til að hjálpa okkur. Svo verður fólk í sal sem getur haft áhrif á dóm okkar," segir Felix Bergsson. Hann mun sjá um Eurovision-þættina Alla leið þetta árið ásamt Reyni Þór Eggertssyni. Þættirnir verða byggðir upp á svipaðan hátt og undanfarin ár og munu öll lögin sem keppa í Eurovision í Malmö í maí verða skoðuð. Fyrsti þátturinn fer í loftið laugardaginn 13. apríl og verða þeir svo sýndir næstu fimm laugardaga þar á eftir, eða allt fram að keppni. Reynir Þór hefur lengi verið tengdur við Eurovision-heiminn og þykir einn helsti spekingur landsins í þeim málum. Áhugi og þekking Felix á Eurovision hefur þó farið hljóðar en hann segist þó vera mikill aðdáandi keppninnar þó þekking hans sé hvergi nærri jafn mikil og Reynis. "Reynir er að finna líkindi með lögum sem eru að keppa í ár og öðrum sem tóku kannski þátt í undankeppnum einhverra landa fyrir mörgum árum síðan. Hann kemur með alls kyns svoleiðis innslög inn í þættina, sem er rosalega gaman," segir hann. Felix er keppninni þó sæmilega kunnur og fór til að mynda með Vinum Sjonna til Düsseldorf árið 2010 sem blaðafulltrúi þeirra. Hann hefur þó aldrei tekið þátt sjálfur, þó það hafi komið til tals á árum áður. "Það voru umræður um það á þeim tíma sem ég var poppstjarna, en það tímabil entist svo stutt að það varð aldrei neitt úr því," segir hann og hlær. "Ætli ég sé ekki orðinn of seinn núna, þó það sé aldrei að vita," bætir hann við.
Tónlist Mest lesið Sex ára þegar hann var fyrst frelsissviptur Lífið Háleit markmið Katrínar: Sparar í mat og greiðir 10 milljónir inn á húsnæðislánið Lífið Pamela Bach-Hasselhof látin Lífið Svona er umhorfs hjá Höllu á Bessastöðum Lífið Fimm heillandi heimili í höfuðborginni Lífið „Fyrir mér snýst þetta ekki bara um að sækjast eftir kórónu“ Lífið Ungir Framsóknarmenn safna fyrir neyðarsjóð Ragnars Þórs Lífið Var mjög heit fyrir lýtalækninum Lífið Segir gott að elska Ara Lífið Fáðu að vita strax hvort þú hafir efni á draumaeigninni Lífið samstarf Fleiri fréttir Dusta rykið af danssokkunum Daniil og Birnir í eina sæng Angie Stone lést í bílslysi „Frelsi til að gera allt sem þig langar til“ Þessi eru tilnefnd til Íslensku tónlistarverðlaunanna Bein útsending: Tilnefningar til Íslensku tónlistarverðlaunanna Draumurinn rættist að syngja með Bubba Gekk 20 metra á 35 mínútum í tíu gráðu frosti The Smashing Pumpkins til Íslands Þau fóru áfram í úrslit söngvakeppninnar Sjá meira