Bíó og sjónvarp

Kvikmyndahátíð barna í fyrsta sinn

Álfrún Pálsdóttir skrifar
Hrönn Sveinsdóttir, framkvæmdastjóri Bíó Paradísar, ætlar að gera Kvikmyndahátíð barna og unglinga að árvissum viðburði. Hátíðin er sett í dag.
Hrönn Sveinsdóttir, framkvæmdastjóri Bíó Paradísar, ætlar að gera Kvikmyndahátíð barna og unglinga að árvissum viðburði. Hátíðin er sett í dag. Fréttablaðið/gva
„Það er svo mikið til af fínu barnaefni sem er synd að íslensk börn fari á mis við,“ segir Hrönn Sveinsdóttir, framkvæmdastjóri Bíó Paradísar sem stendur fyrir Kvikmyndahátíð barna og unglinga.

Hátíðin hefst í dag en hún er sú fyrsta sinnar tegundar hér á landi. Stefnan er að gera hana að árvissum viðburði. „Síðan ég tók við hjá Bíó Paradís hef ég hugsað hvað það væri gaman að geta boðið börnum upp á alþjóðlegt gæðaefni enda vantar fjölbreytni í kvikmyndaúrvalið fyrir þennan aldur hér á landi. Þetta er liður í að styðja og styrkja kvikmyndamenntun fyrir börn og unglinga.“

Dagskráin er fjölbreytt en hátíðin stendur fram á þriðjudaginn 4,júní. Opnunarmyndin er franska teiknimyndin Ernest og Celestine sem hlaut verðlaun í heimalandi sínu í fyrra en hún er unnin úr vatnslitahreyfimyndum. Ein af áhugaverðari myndum hátíðarinnar er svo leikin mynd um barnavændi í þriðja heiminum. Hún er gerð fyrir börn og sýnd í þeim tilgangi að sýna þeim veruleika annarra barna. Myndin er byggð á sannri sögu og hugsuð fyrir eldri hópa hátíðarinnar. „Það er 15 ára aldurstakmark á þá mynd en það er eingöngu efnisins vegna. Svo erum við með myndir fyrir allt niður í þriggja ára áhorfendur.“

Hægt er að nálgast nánari dagskrá á vefnum Bioparadis.is.

Endurhvarf til æskunnar

Á dagskrá hátíðarinnar má finna klassísku myndirnar E.T. the Extra-Terrestrial og Karate Kid. Er það ætlað fyrir foreldra að rifjað upp kvikmyndirnar með börnum sínum. n E.T. kom út árið 1982 í leikstjórn Stevens Spielberg. Kvikmyndin sló í gegn á sínum tíma og hlaut fern Óskarsverðlaun. Myndin hefur verið vinsæl alla tíð síðan og var endurútgefin árið 2002 með aukaefni. n Karate Kid kom út árið 1984 en leikstjóri hennar er John G. Avildsen. Hún var tilnefnd til einna Óskarsverðlauna á sínum tíma og óhætt segja að ákveðið karateæði hafi gripið um sig meðal ungmenna í kjölfar sýninga myndarinnar.

 






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.