Lífið

Systir Eyþórs Inga stefnir ekki á Eurovision

Ellen Ýr og restin af fjölskyldunni hennar fór með Eyþóri Inga til Svíþjóðar til að styðja við bakið á honum í Eurovision. Ellen segist ekki hafa verið mikill aðdáandi keppninnar fyrir, þó hún hafi horft á keppnina frá því hún man eftir sér. „Þetta var alveg ólýsanlegt. Mér datt ekki í hug að það væri svona mikill glamúr í kringum þetta og að þetta væri svona mikil hátíð,“ segir hún og viðurkennir að hún sé nú smituð af Eurovision-bakteríunni þó hún stefni ekkert sérstaklega að því að feta í fótsport stóra bróðurs og syngja á Eurovision-sviðinu, í það minnsta ekki enn þá.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.